Innlent | Sunnudagsblað | 1.3.2026 | 8:54 Skipti um kyn í miðju matarboði Ingrid Erin Costello hefur aldrei liðið betur en í dag. mbl.is/Árni Sæberg Orri Páll Ormarsson [email protected] Setja bókamerki Bandaríski trymbillinn Eric Michael Herrmann hafði frá fyrstu tíð vitað að hann væri kona en kom þó ekki út sem trans fyrr en rétt fyrir sextugt. Kynleiðréttingarferlið er nú að baki og Eric heitir nú Ingrid Erin Costello og hefur ekki í annan tíma liðið betur í eigin skinni. Ingrid varð til með eftirminnilegum hætti, í miðju matarboði. Haustið 2021 var Ingrid, þá Eric, boðið í mat hjá barnsmóður sinni í Toronto í tilefni af 16 ára afmæli dóttur þeirra, Frithu. Amma Frithu var þar einnig. „Þegar Fritha kom heim var vinahópurinn með henni, allur regnboginn, leyfi ég mér að segja. Krakkar sem eru gjörsamlega frjálsir undan þröngsýni samfélagsins, hinsegin fólk, kvár og hvaðeina. Ég dáðist að þeim,“ segir Ingrid. Ingerid er pönkari frá fyrstu tíð og heimsótti að sjálfsögðu Pönksafn Íslands í Bankastræti 0. mbl.is/Árni Sæberg Meðan verið var að elda matinn tók Fritha föður sinn, sem Ingrid var ennþá á þeim tíma, á eintal. „Hún sagðist þurfa að viðurkenna svolítið fyrir mér. Hvað er það, Fritha mín? spurði ég. Hún sagðist þá ekki vera viss hvort að hún væri stelpa, en samt varla strákur heldur. Sumsé kvár sem vildi hér eftir vera kallað Frith. Það er frábært, Frith, sagði ég. Ég elska þig eftir sem áður alveg jafn mikið. Ég hef alltaf vitað að þú værir einstök manneskja. Eftir það féllumst við í faðma.“ Færði henni kjark Þetta samtal færði Ingrid sjálfri kjark og yfir borðhaldinu kvaddi hún sér hljóðs og sagðist hafa lifað í lygi í 59 ár en nú væri nóg komið. „Ég viðurkenndi að ég væri afbrýðisöm út í þessa heilsteyptu krakka vegna óttaleysis þeirra en um leið hefðu þau verið mér mikill innblástur og hvatning. Staðreyndin er sú, sagði ég, að ég er í raun og veru kona og hef vitað það alla ævi. Frá og með þessari stundu er ég hætt að lifa í þessari lygi! Engum togum skipti að Frith og vinir hennar ruku á mig, föðmuðu og kysstu. Þetta var ógleymanleg stund og ófá tárin streymdu.“ Daginn eftir hafði Ingrid samband við þerapistann sinn til að tilkynna honum þá stefnubreytingu sem líf hennar hefði tekið. „Það var tími til kominn!“ gall í þerapistanum, sem hafði lengi grunað þetta. „Hann hvatti mig til að láta fólk vita sem fyrst og byrja á mínum nánustu.“ Ingrid hefur unnið fyrir sér mestalla tíð sem trommuleikari. mbl.is/Árni Sæberg Af Frith er allt gott að frétta. Hán komst að þeirri niðurstöðu að hán væri ekki kvár, heldur karl og er nú í hormónameðferð vegna kynleiðréttingar. Er sumsé á leið í öfuga átt við Ingrid. Feðgin eru orðin mæðgin. „Er það ekki makalaust?“ spyr Ingrid. „Ég gæti ekki verið stoltari af þessari ótrúlegu manneskju sem Frith er. Svo er hann líka á kafi í tónlist, eins og ég. Spilar á bassa í fínu bandi.“ Ingrid var í heimsókn á Íslandi á dögunum og ítarlega er rætt við hana í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um kynleiðréttinguna og tónlistarferilinn en hún hefur verið í hinum ýmsu hljómsveitum gegnum tíðina. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Willum hótaði að „klekkja“ á Sigurði Skipti um kyn í miðju matarboði Gera árásir á skotmörk í „hjarta Teheran“ „Ég hætti að stækka þegar ég var 12 ára“ Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Khamenei látinn Merki um að Khamenei sé látinn „Þetta er grafalvarleg staða“ Myndir: „Jaðrar við ofbeldi gagnvart nemendunum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Óvæntar vinsældir í netheimum Aukið aðhald óháð Kerecis Störf meirihlutans „ekkert sérstaklega glæsileg“ Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Segir lítinn mun á Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni „Það er engin heppni í skák" Illugi nýr formaður Ungra vinstri grænna Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Willum hótaði að „klekkja“ á Sigurði Skipti um kyn í miðju matarboði Gera árásir á skotmörk í „hjarta Teheran“ „Ég hætti að stækka þegar ég var 12 ára“ Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Í raun verið í kreppuverðbólgu í fjögur ár 21 milljarðs gjaldþrot Play Ný könnun fyrir kosningar í borginni: Tveir turnar Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Mest lesið Í gær Í vikunni Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Óvæntar vinsældir í netheimum Aukið aðhald óháð Kerecis Störf meirihlutans „ekkert sérstaklega glæsileg“ Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Segir lítinn mun á Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni „Það er engin heppni í skák" Illugi nýr formaður Ungra vinstri grænna Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“