Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verð á matvælum gæti þrefaldast

Read Full Article →

Matarverð í Bretlandi gæti þrefaldast fyrir árslok, að mati British Retail Consortium, samtaka matvæla- og drykkjarframleiðenda, í landinu. Þau spá að matvælaverð hækki um 10% á árinu en áður höfðu samtökin gert ráð fyrir að það myndi hækka um 3,2%. Eins og lesa má í umfjöllun The Wall Street Journal er ástæðuna að í afleiddum áhrifum átaka í Miðausturlöndum, einkum truflana á flutningum um Hormuz-sund og hækkandi orkukostnaðar. Greinin er talin sérstaklega viðkvæm fyrir slíkum áföllum, enda háð bæði orkuverði og alþjóðlegum flutningsleiðum. Stærri framleiðendur búa sig nú undir hækkandi orkukostnað þegar langtímasamningar renna út, á meðan smærri framleiðendur sem kaupa orku á skammtímamarkaði finna þegar fyrir þrýstingi. Þá hafa breskir útflytjendur til Miðausturlanda neyðst til að fresta eða hætta við sendingar, með tilheyrandi tekjutapi og aukinni óvissu. Að sögn hagfræðings samtakanna er staðan fordæmalaus og þróunin ófyrirsjáanleg, en ljóst að kostnaðarhækkanir muni skila sér í hærra matarverði á næstu mánuðum þrátt fyrir tilraunir fyrirtækja til að halda aftur af verðhækkunum. Spár samtakanna byggja á því að siglingar um Hormuz-sund komist aftur í eðlilegt horf á næstu vikum og að orkuframleiðsla á svæðinu jafni sig innan árs. Samkvæmt gögnum frá British Retail Consortium mældist verðbólga matvæla og óáfengra drykkja 3,4% í mars, lítillega lægri en 3,5% í febrúar.

Share this article