Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga í Bretlandi yfir 3% á ný

Read Full Article →

Verðbólga í Bretlandi hækkaði í 3,1% í ágúst úr 2,9% í júlí, samkvæmt nýjustu tölum. Á vef Guardian segir að hækkunin hafi verið í takt við spár greinenda og skýrist einkum af hækkandi eldsneytisverði í kjölfar stríðsins í Íran. Englandsbanki tekur stýrivaxtaákvörðun á morgun og er almennt búist við því að bankinn haldi vöxtum óbreyttum í 3,75%. Markaðsaðilar gera hins vegar ráð fyrir að minnsta kosti fjórum vaxtahækkunum fram til loka næsta árs, sem myndi færa stýrivexti í 4,75%. Heimsmarkaðsverð á olíu fór yfir 108 dali á tunnu í gær í kjölfar harðnandi átaka í Mið-Austurlöndum. Hækkandi orkuverð varð meðal annars til þess að Seðlabanki Evrópu hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku. Bankinn vísaði sérstaklega til verðbólguþrýstings vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Undirliggjandi verðbólguþrýstingur í Bretlandi virðist þó enn vera í skefjum samhliða kólnandi vinnumarkaði. Verðbólga í þjónustugeiranum stóð í stað í 3,4% og kjarnaverðbólga hélst óbreytt í 2,6%. Englandsbanki hélt vöxtum óbreyttum í júlí og varaði þá við áhrifum áframhaldandi hækkunar orkuverðs á verðbólgu.

Share this article