Innlent | mbl | 1.8.2026 | 21:55 Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Rúðan inn í herbergi hjónanna mölbrotnaði eftir að mulningstækið lét höggin ítrekað dynja á byggingunni. Samsett mynd/Ljósmynd/Selma Hreiðarsdóttir Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Dóttir íbúa í Hamraborg óttast um öryggi foreldra sinna eftir að stærðarinnar vinnuvél lét högg ítrekað dynja á heimili þeirra við Fannborg átta, sem hýsir íbúðir fyrir eldri borgara, með þeima afleiðingum að rúða splundraðist. „Þetta er svolítið svakalegt, að það sé bara ráðist að húsi foreldra manns og rúðan þeirra brotin beint fyrir framan þig með stærðarinnar kló,“ segir Selma Hreiðarsdóttir, dóttir hjónanna, í samtali við mbl.is. Hún segir viðbrögð verktakans dapurleg, þar sem enginn vinnumanna á svæðinu hafi komið til þess að athuga hvort væri í lagi með hjónin, sem eru á níræðis- og tíræðisaldri eins og margir íbúar. Í apríl greindi mbl.is frá því að fjúkandi bárujárn frá vinnusvæðinu hefði ollið talsverðu tjóni á byggingunni, og sögðu íbúar frágang verktakans á vinnusvæðinu í aðdraganda mikils vinds bera merki um alvarlegt kæruleysi. Frétt af mbl.is Myndskeið: Fjúkandi bárujárn veldur tjóni Frétt af mbl.is Hófu ólöglegt niðurrif á byggingu í Kópavogi Framkvæmdir við niðurrif Fannborgarhússins hófust í upphafi árs. mbl.is/Ólafur Árdal Hjó klónni þrisvar sinnum í húsið Síðan þá hafa framkvæmdir verið í gangi alla daga að sögn Selmu, þar sem verið sé að bora og brjóta niður planið við húsið. Á fimmtudaginn þegar atvikið átti sér stað var hún stödd í heimsókn hjá foreldrum sínum. „Ég sé að þeir eru að moka því sem hefur verið brotið niður af planinu í vörubíl út í burtu. Allt í einu sé ég þessa gríðarstóru mulningskló sem keyrir áfram á fullri ferð og veður í húsið rétt við herbergisgluggann þeirra,“ segir hún. „Hún heggur í húsið, fyrst einu sinni svo mér krossbregður og hleyp og sé hana bara, að mér fannst hreinlega komna inn um gluggann, og svo heggur hún aftur í húsið með sömu látum svo það hristist allt og skelfur.“ „Eins og sprenging“ Fyrstu viðbrögð Selmu voru að loka herberginu, af ótta við að vélin myndi brjóta sér leið inn í húsið. „Í þriðja skiptið heggur hún aftur og þá heyrist svakalegur hvellur, eins og sprenging, og þá opna ég inn og sé bara að rúðan er sprungin,“ segir hún. Í kjölfarið færist bóman frá glugganum, en Selma hleypur út að glugganum, framhjá glerbrotunum sem liggja út um allt gólfið, og reynir að ná athygli ökumanns vélarinnar með handapati og veifi. „Hann gerir einhvern svona þumal með hendinni og veifar á móti, og keyrir svo í burtu og heldur áfram að vinna. Það var enginn sem kom upp til að athuga hvort það væri í lagið með fólkið sem þarna býr, í þessu húsi fyrir eldri borgara.“ Mynd af vinnusvæðinu í dag, þar sem verið var að moka grjóti og braki upp í vörubíl. Ljósmynd/Selma Hreiðarsdóttir Ætlunin að fjarlægja brak frá húsinu Selma segir að sjálfri hafi sér orðið meira brugðið en foreldrum sínum, sem komin eru á ní- og tíræðisaldur, og segir það erfitt að vita af þeim í húsinu þar sem svona geti komið fyrir. „Það er sjokk, að vita af því að þau séru þarna inni og að þetta sé hættan.“ Eftir að hafa haft samband við forstöðumann Sunnuhlíðarsamtakanna sem reka húsið náðu þau loks tali af verktakanum, sem hafi svarað á þá áttina að vinnumenn hafi verið að moka braki frá húsinu. „Þeir áttu náttúrulega alls ekki að vera að gera það með svona stórri vél, því þetta er örugglega svona rúmlega tuttugu tonna vél, og líka með þessari kló. Auðvitað hefur það ekki verið ætlunin að lemja á húsið, en okkur finnst þetta svolítið svakalegt.“ Ytri gluggakarmurinn varð fyrir talsverðum skemmdum eftir höggin. Ljósmynd/Aðsend Segir viðbrögðin dapurleg Um fimm klukkustundum seinna fjarlægðu vinnumenn brotnu rúðurnar utan frá, án þess að gera boð á undan sér og án skýringa um það hvenær gluggi fengist á herbergi gömlu hjónanna. „Þeir negldu bara fyrir, og svo vitum við ekkert meir,“ segir Sólveig, sem segir viðbrögð verktakans dapurleg. „Það var ekkert mannlegt í þessu; enginn sem kemur upp og biðst afsökunar eða athugar hvort það sé allt í lagi með þau, gömlu hjónin þarna uppi. Það er ekki gott að vita af því að manni finnist foreldrar manns hreinlega vera í lífshættu, og það er bara heppni að ég var þarna.“ Íbúð hjónanna beið einnig tjón af bárujárnsfoki af vinnusvæðinu sem varð í apríl, og Selma segir viðbrögðin hafa verið betri þá þar sem vinnumaður hafi strax komið hlaupandi upp og athugað hvort allt væri í lagi. „Þarna voru ekki nein viðbrögð, og þetta var mun alvarlegra atvik að mínu mati.“ Íbúð hjónanna beið einnig tjón af bárujárnsfoki af vinnusvæðinu sem varð í apríl. Ljósmynd/Hákon Gunnarsson Áhyggjur af komandi framkvæmdum Selma hefur áhyggjur af komandi framkvæmdum, en til stendur að þann 20. ágúst hefjist vinna við að sprengja niður heilan bílakjallara. Frétt af mbl.is Frekara niðurrif fram undan og uppbygging í sumar „Það er óhugnalegt að vita af þeim þarna, sérstaklega eftir þetta atvik á fimmtudaginn,“ segir hún. „Þetta er svolítið svakalegt, að það sé ráðist að húsi foreldra manns og rúðan þeirra brotin beint fyrir framan þig með stærðarinnar kló.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Yngstur til að spila fyrir United Leðjuboltaslagur og rífandi stemning á Ströndum Myndir: Akureyrarvöllur að fyllast Félagsmet slegið hjá Brentford Umræðan Margbrotinn Ódysseifur Þrautir í Ceuta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Guð gaf okkur gott veður“ Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Skýrslutökur í varðskipi Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Mest lesið Í gær Í vikunni Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Guðmundur Felix með krabbamein Koma til Íslands að vinna Andlát: Einar Sindrason Fer fram á brottvísun og endurkomubann „Vonast til að sjá allt að 10.000 manns“ Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Sérkennilegt að húsið standi autt Saklaus læknatími endaði með innlögn Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Var í afneitun vegna versnandi heilsu Inngrip auðveld innan landhelgi Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Erfitt rekstrarumhverfi: Aflýsa öllu áætlunarflugi Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Myndir: Bandero kominn til hafnar Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn Nýjast á mbl.is » Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Yngstur til að spila fyrir United Leðjuboltaslagur og rífandi stemning á Ströndum Myndir: Akureyrarvöllur að fyllast Félagsmet slegið hjá Brentford Umræðan Margbrotinn Ódysseifur Þrautir í Ceuta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll Mest lesið Í gær Í vikunni Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Guðmundur Felix með krabbamein Koma til Íslands að vinna Andlát: Einar Sindrason Fer fram á brottvísun og endurkomubann „Vonast til að sjá allt að 10.000 manns“ Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Sérkennilegt að húsið standi autt Saklaus læknatími endaði með innlögn Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Var í afneitun vegna versnandi heilsu Inngrip auðveld innan landhelgi Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Erfitt rekstrarumhverfi: Aflýsa öllu áætlunarflugi Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Myndir: Bandero kominn til hafnar Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn