Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Óskar og Hörður ósammála: „Ætlarðu að segja - þú verður að borða úti á svölum“

Read Full Article →

Það eru skiptar skoðanir á hreinsun markvarðarins Arnars Freys Ólafssonar í 4-2 sigri KR gegn Val í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta. Arnar var úti á miðjum velli og tók Tryggva Hrafn Haraldsson niður eftir hreinsunina. Óskar Hrafn Þorvaldsson og sérfræðingurinn Hörður Magnússon voru vægast sagt ósammála um atvikið. Dómarinn Ívar Orri Kristjánsson dæmdi aukaspyrnu á Tryggva. Atvikið má sjá í spilaranum. Hörður skildi ekki af hverju markvörðurinn væri svo langt úti á velli. „Ætlarðu að segja við hann. Þú mátt ekki gera þetta og þetta. Ef þú átt þrjú börn og þú segir við yngsta barnið. Þú mátt því miður ekki borða með okkur í dag, þú verður að borða út á svölum. Ég segi ekki rautt. Auðvitað er ég ekki með hlutlaus gleraugu. Ég er með KR gleraugun á mér alla daga," sagði Óskar.

Share this article