Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þór vann Akureyrarslaginn - Gunnar skoraði 16 fyrir meistarana

Read Full Article →

Bæði Akureyrarliðin ætla sér stóra hluti í vetur og var húsfyllir í KA-heimilinu í kvöld. Jafnræði var á með liðunum svotil allan leikinn í kvöld. Jafnt var í hléi 16-16. Jafnt var raunar þar til á endasprettinum. Þá náðu Þórsarar að slíta sig frá og unnu með 35 mörkum gegn 31. Tölfræði leiksins frá HBStatz má sjá hér. Íslandsmeistarar Vals komust aftur á sigurbraut þegar þeir sóttu HK heim. Gunnar Róbertsson fór mikinn hjá Val og skoraði 16 mörk. Hann skoraði 17 mörk í síðasta leik þegar Valur tapaði gegn Fram og hefur hann því skorað 33 mörk í tveimur leikjum. Valur vann 38-29 og má sjá tölfræði leiksins hér. Önnur úrslit í kvöld urðu þessi og má sjá tölfræði leikjanna með því að smella á úrslitin: Haukar - Afturelding 32-30 Selfoss - Stjarnan 34-34 FH - Víkingur 40-34 Haukar eru með fullt hús stiga á toppi deildarinnar. Fram getur náð á morgun þegar liðið tekur á móti ÍBV í lokaleik þriðju umferðar. Staðan í deildinni er hér.

Share this article