Óskar skoraði fyrst á 34. mínútu og svo tvívegis á 35. og svo 52. mínútu. Tvö síðari mörkin voru með skalla, sem hann hefur æft. „Ég er heldur betur búinn að æfa skallana. Eftir æfingar, krossa og skalla. Það er heldur betur búið að skila sér,“ segir Óskar í spjalli við RÚV. Víkingur er í efsta sæti eftir 10 leiki og er þremur stigum á undan KR. Liðin mætast einmitt í næstu umferð, sem er þó reyndar ekki fyrr en 16. júní, að loknu landsleikjahléi. „Við erum bara að pæla í okkur sjálfum,“ segir Óskar um fyrirhugaðan stórleik. „Við erum bara að spila okkar bolta og það verður ógeðslega gaman að mæta KR í næsta leik,“ segir hann að lokum.