Verðbréfafyrirtækið Acro verðbréf hf. skilaði 157 milljóna króna hagnaði á síðasta ári, samanborið við 932 milljóna króna hagnað árið áður. Hagnaður fyrirtækisins var síðast lægri árið 2019. Stjórn félagsins lagði til við aðalfund að greiddar verði allt að 99,8 milljónir króna í arð til hluthafa á árinu 2026, samkvæmt nýbirtum ársreikningi. Hreinar rekstrartekjur Acro, sem starfar á sviði markaðsviðskipta og eignastýringar, námu 1.212 milljónum króna á árinu 2025 og lækkuðu um 788 milljónir milli ára eða um 39,4%. Viðskiptaþóknanir félagsins námu 1.291 milljón og drógust saman um 31,5% milli ára. Rekstrargjöld jukust um 16,6% milli ára og námu 985 milljónum króna. Laun og tengd gjöld jukust um 18,7% milli ára og námu 454 milljónum króna. Ársverk voru 15 á árinu 2025, samanborið við 14 árið áður. Eignir Acro verðbréfa námu 726 milljónum króna í árslok 2025, samanborið við 1,4 milljarða árið áður. Eigið fé fyrirtækisins nam 480 milljónum króna í lok síðasta árs. Í árslok voru níu hluthafar skráðir í félaginu, óbreyttur fjöldi milli ára. Þorbjörn Atli Sveinsson, sem fer fyrir greiningarteymi markaðsviðskipta, var stærsti hluthafinn með 16,75% hlut. Aðrir helstu hluthafar eru Hannes Árdal framkvæmdastjóri, Gunnar Freyr Gunnarsson, Tómas Karl Aðalsteinsson og Björn Hjaltested, hver með 14,62% hlut.