Fasteignaþróunarfélagið Arcus, sem er í eigu Þorvalds Gissurarsonar, hagnaðist um 3.207 milljónir króna í fyrra, samanborið við 5.517 milljóna króna hagnað árið 2024. Þegar matsbreyting fasteigna í eigu félagsins er tekin inn í reikninginn nemur heildarhagnaður Arcus 3.990 milljónum króna á árinu 2025, samanborið við 6.778 milljóna heildarhagnað árið áður. Tekjur samstæðunnar námu 13.201 milljón króna, sem er 20% samdráttur frá fyrra ári. Eignir samstæðunnar voru þá bókfærðar á 82.619 milljónir króna í árslok 2025 og eigið fé nam 30.863 milljónum. Byggingafyrirtækið ÞG verktakar, sem einnig er í eigu Þorvalds og er systurfélag Arcus, hagnaðist um 1.459 milljónir króna í fyrra, samanborið við 632 milljóna hagnað árið 2024. Tekjur námu 16.292 milljónum og jukust um 69% milli ára. Eignir voru bókfærðar á 10.346 milljónir króna og eigið fé nam 5.608 milljónum. Meðal helstu verkefna ÞG Verktaka er ný Ölfusárbrú en verksamningur var undirritaður í lok árs 2024. Áætlaður framkvæmdakostnaður er um 15,8 milljarða króna, en félagið fjármagnar framkvæmdir á framkvæmdatíma eða til afhendingar brúar árið 2028. Á árinu 2025 fjármagnaði félagið sig m.a. með um 1,9 milljarða króna skuldabréfaútgáfu og gerði rammasamning um frekari skuldabréfaútgáfu allt að 12,6 milljörðum króna. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .