Flugvallarsvæðið á Siglufirði hefur verið í lítilli notkun síðustu ár og hugmyndir um uppbyggingu hafa verið í pípunum frá því 2022. Bæjarráð Fjallabyggðar ákvað á fundi nýverið að ganga til viðræðna við Viking Heliskiing um kaup á fasteignum sveitarfélagsins á svæðinu. Markmiðið er að það verði í lykilhlutverki í uppbyggingu ferðaþjónustu á Tröllaskaga. Hugmyndir Viking Heliskiing samræmast tillögum starfshóps sem skilaði minnisblaði árið 2022, að mati bæjarstjóra Fjallabyggðar, þar sem markmiðið er að byggja upp atvinnustarfsemi og nýta þessar fasteignir sveitarfélagsins. Hann telur að þetta gæti orðið frábært fyrir sveitarfélagið, verðmætið felist ekki í sölu fasteignanna heldur framtíðarnýtingu. Björgvin Björgvinsson, eigandi Viking Heliskiing, segir mikil tækifæri vera í uppbyggingunni: „Já, við erum að skoða allt saman. Við höfum áhuga á að byggja upp svæðið og gera þetta að skemmtilegri upplifun fyrir gesti.“ Ekki bara þyrluflug og skíði Fyrirtækið býður upp á þyrluflug á fjöll, þar sem fólk fer svo niður á skíðum. Mikið hefur verið að gera hjá þeim að undanförnu enda mikill snjór á Tröllaskaga. Fyrirtækið hafi stækkað mikið og þurfi meira pláss. Þeir sjá fyrir sér meira en bara þyrlur á flugvellinum. „Kannski bæta bara meiri þjónustu og setja kannski einhverja heita potta og gera þetta aðeins öðruvísi. Það verður bara að koma í ljós hvort bærinn hafi áhuga á að klára þetta með okkur.“