Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Heitustu miðarnir í körfunni

Read Full Article →

Vorið er uppáhalds tími íþróttaáhugafólks enda ráðast úrslitin í fjölda íþróttagreina hérlendis sem og erlendis. Þar að auki rúllar tímabilið í fótboltadeildunum hér á landi af stað. Af öðrum íþróttum ólöstuðum tekur úrslitakeppni Bónus deildarinnar í körfubolta þó alla jafna hvað mesta plássið, enda hefur körfuboltahreyfingunni tekist að búa til frábæra „vöru“ fyrir áhorfendur á pöllunum sem og heima í stofu. Eins og gefur að skilja er úrslitakeppnin mjög mikilvæg tekjulind fyrir félögin sem í hana komast. Þannig reynir á körfuboltafélögin að vera skapandi í tekjuöflun á leikdegi. Hrósa má íþróttafélögunum fyrir að hafa á undanförnum árum lagt sífellt meira upp úr því að búa til góða leikdagsupplifun fyrir stuðningsmenn og áhorfendur. Á það ekki einungis við körfuboltann heldur einnig við aðrar vinsælar íþróttir á borð við fótbolta og handbolta. Það lyftir ekki bara stemningunni á kappleiknum að leggja áherslu á öfluga leikdagsupplifun heldur stuðlar það jafnframt að aukinni sölu á varningi og veigum í fljótandi og föstu formi. 15 þúsund krónur stykkið Gott dæmi um hvernig félögin hafa náð að auka tekjur sínar á undanförnum árum eru síauknar vinsældir svokallaðra „courtside“ sæta í úrslitakeppni körfuboltans. Eins og heitið gefur til kynna er um að ræða sæti sem búið er að koma upp niðri á gólfi og njóta þeir sem þar sitja því þeirra forréttinda að horfa á leikinn eins nálægt útlínum vallarins og mögulegt er. Þessum sætum fylgir oftar en ekki sérstakur VIP-aðgangur þar sem vel er gert við gesti í mat og drykk. Miðað við uppgefin verð í miðasöluforritinu Stubbi er verðmiði hvers „courtside“ sætis fimmtán þúsund krónur. Rúmlega helmingur liðanna, eða fimm, sem keppa í átta liða úrslitum Bónus deildar karla eru með miða í „courtside“ sæti til sölu í Stubbi. Umrædd félög eru Tindastóll, Stjarnan, Keflavík, ÍR og Njarðvík og er verðmiðinn í öllum tilfellum sá sami: fimmtán þúsund krónur. Þess ber þó að geta að sæti í þriðju röð hjá Stjörnunni kosta tíu þúsund krónur stykkið. Þrjú lið, deildarmeistarar Grindavíkur, Valur og KR, eru ekki með slík sæti til sölu í Stubbi. Þó að allur gangur sé á því hvaða fríðindi fylgi með hverju „courtside“ sæti felast þau eins og fyrr segir alla jafna í aðgengi að sérstöku VIP-svæði þar sem í boði er matur og drykkur. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article