Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Frambjóðendurnir á hliðarlínunni

Read Full Article →

Úrslitakeppnin í Bónus-deildinni í körfuknattleik er vafalaust skemmtilegasti íþróttaviðburður hvers árs enda ganga áhorfendur að stórkost­legum tilþrifum og magnþrunginni spennu vísri í nánast í hverjum leik. Einn af fylgi­fiskum úrslitakeppninnar í körfunni er að þegar allt er undir í undanúrslitum og ­úrslitum fara að sjást ýmiss konar fyrirmenn sem annars sjást ekki á körfubolta­leikjum og taka þeir sér einatt stöðu í sér­stökum „VIP“-stólum við hliðarlínuna . Þannig mátti sjá Kristrúnu Frostadóttur á hliðarlínunni þegar ­Stjarnan tryggði sér oddaleik gegn Tindastóli á sunnudag. Það sama var upp á teningnum á mánudag þegar Valur gerði slíkt hið sama gegn Grindvíkingum. Þar mátti sjá jafnaðarmanninn Pétur Marteinsson ásamt oddvitunum Einari Þorsteinssyni og Björgu Magnúsdóttir auk leikarans Rúnars Freys Gíslasonar sem er á lista sjálfstæðismanna í borginni. Körfuknattleiksáhuginn virðist þó einlægari hjá þingmönnum Suður­kjör­dæmis, en þar má oft sjá Guðrúnu Hafsteinsdóttir og Vilhjálm Árnason á pöllunum á leikjum Grindavíkur og Keflavíkur og þá uppi á pöllunum með sauðsvörtum almúganum. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 6. maí 2025.

Share this article