Ásmundur Atlason er hættur sem markaðsstjóri Domino's á Íslandi en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu síðastliðin sex ár, þar af fjögur sem markaðsstjóri. Í tilkynningu segist hann kveðja fyrirtækið með sátt og glaðlyndi og sé þakklátur fyrir þann tíma hjá Domino‘s sem hafi einkennst af jákvæðni, skemmtilegum verkefnum og áskorunum. „Þetta hefur verið algjör snilld. Domino's er fyrsta vinnuástin mín sem gerir þetta skref þeim mun erfiðara en á sama tíma finnst mér þetta rétta augnablikið,“ segir Ásmundur. Sjá einnig Birgir selur sig út úr Domino‘s á Íslandi Hann segir að það sé margt spennandi fram undan en hann eignaðist sitt annað barn þann 21. febrúar sl. og verður í fæðingarorlofi næstu mánuðina. „Ég hlakka mest til þess í lífinu að vera meira með strákunum. Hvað gerist kemur í ljós. Ég er bjartsýnn og horfi jákvæðum augum til framtíðarinnar. Ég hlakka til að takast á við nýjar áskoranir og mun mæta öllum spennandi tækifærum með opnum huga,“ segir hann.