Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Samdráttur hjá Domino's á Íslandi

Read Full Article →

Pizza-Pizza ehf., rekstrarfélag Domino‘s á Íslandi, hagnaðist um 38 milljónir kóna árið 2025, samanborið við rúmlega 230 milljóna króna hagnað árið áður. Velta Domino‘s á Íslandi, sem rekur 22 veitingastaði, dróst saman um 144 milljónir eða 2,2% milli ára og nam 6.574 milljónum króna. Rekstrargjöld jukust um 1,5% og námu 6.534 milljónum króna. Ársverkum fækkaði úr 238 í 233. EBITDA-hagnaður félagsins dróst saman úr 279 milljónum króna í 40 milljónir króna milli ára. Tap hjá móðurfélaginu Félagið PPH ehf., sem er í eigu nokkurra íslenskra einkafjárfesta, keypti Pizza-Pizza ehf. árið 2021 fyrir 2,4 milljarða króna af breska félaginu Domino‘s Pizza Group. PPH, sem á einnig fasteignir sem hýsa hluta af veitingastöðum Domino‘s á Íslandi, tapaði 233 milljónum króna árið 2025, samanborið við 76 milljóna tap árið áður. Eignir PPH námu tæplega 2,7 milljörðum króna í lok síðasta árs og eigið fé var um einn milljarður króna. Skuldir félagsins við lánastofnanir námu 810 milljónum króna í lok síðasta árs, samanborið við 940 milljónir árið áður . Félagið leggur ekki til að greiddur verði út arður vegna síðasta rekstrarárs, en til samanburðar greiddi félagið út 133 milljónir króna í fyrra. Nýlega urðu breytingar á eignarhaldi PPH. Hjónin Birgir Þór Bieltvedt og Eygló Björk Kjartansdóttir seldu á seinni hluta síðasta árs fjórðungshlut sinn í PPH til annarra hluthafa félagsins. Sjá einnig Birgir selur sig út úr Domino‘s á Íslandi Kaupandi var eignarhaldsfélagið Ívar, sem er í meirihlutaeigu Katrínar Pétursdóttur, forstjóra Lýsis, og dóttur hennar Erlu Katrínu Jónsdóttur. Auk þess á Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Lýsi, 27% hlut í Ívari. Ívar er í dag stærsti hluthafi PPH með 38,5% hlut. Þar á eftir kemur Kristinn ehf., fjárfestingarfélag Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu, með 34,7% hlut og Sjávarsýn, fjárfestingarfélag Bjarna Ármannssonar, með 25,7% hlut. Auk þess á Jónsson & Harðarson ehf., félag lögmannsins Halldórs Jónssonar, 1% hlut. Stærstu hluthafar PPH ehf. Hluthafi Eignarhlutur Ívar ehf. 38,5% Kristinn ehf. 34,7% Sjávarsýn ehf. 25,7% Jónsson & Harðarson ehf. 1,0%

Share this article