Domino‘s Pizza, stærsta flatbökukeðja heims, hefur ráðið Joe Jordan sem næsta forstjóra keðjunnar. Jordan, sem gegnir nú stöðu rekstrarstjóra keðjunnar, tekur við starfinu 1. október nk. af Russell Weiner sem færir sig yfir í stöðu stjórnarformanns. Í viðtali við Wall Street Journal kveðst Jordan ætla að leggja sérstaka áherslu á daglegan rekstur fyrirtækisins, sem hefur farið versnandi undanfarin ár. Flatbökumarkaðurinn vestanhafs hefur vaxið hægar en veitingageirinn að jafnaði frá árinu 2017, að undanskildu árinu 2020 þegar heimsfaraldurinn jók tímabundið eftirspurn eftir heimsendingum. Jafnframt hefur hörð verðsamkeppni þrengt að framlegð fyrirtækja í veitingageiranum. Markaðurinn tók tíðindunum af nokkurri varfærni. Hlutabréf Domino’s lækkuðu um tæplega 2% í viðskiptum eftir að tilkynnt var um forstjórabreytinguna og hafa bréfin lækkað um nærri 30% frá áramótum. Athygli vakti er fjárfestingafélag Warren Buffett, Berkshire Hathaway, seldi allan hlut sinn í Domino’s í maí. Berkshire hafði byggt upp stöðu í félaginu frá árinu 2023 en ákvað að selja allan hlut sinn fyrr á þessu ári.