Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Jákvæðar niður­stöður og FDA-um­sókn fyrir lok árs

Read Full Article →

Líftækni­fyrir­tækið Ocu­lis hefur lokið síðustu eftir­fylgni­heimsóknunum í tveimur lykil­rannsóknum sínum á OCS-01 augn­dropum við sjón­himnu­bjúg af völdum sykursýki, eða DME, og stefnir að því að leggja fram markaðs­leyfis­umsókn í Bandaríkjunum á fjórða árs­fjórðungi ársins, að því gefnu að niður­stöður falli félaginu í vil. Félagið gerir ráð fyrir að birta fyrstu helstu niður­stöður úr rannsóknunum í júní. Frá þessu greindi Ocu­lis í kaup­hallar­til­kynningu í morgun. Þar kemur fram að síðustu eftir­fylgni­heimsóknum í báðum fasa 3 DIAMOND-rannsóknunum sé nú lokið. Rannsóknaráætlunin nær til yfir 800 sjúklinga og saman­stendur af tveimur tvíblindum, slem­buðum, fjöl­setra skráningar­rannsóknum sem standa í 52 vikur. OCS-01 er þróað sem staðbundin með­ferð án inn­grips í formi augn­dropa við DME. Ocu­lis segir mark­miðið að bjóða fyrsta augn­dropa­lyfið sinnar tegundar við þessum sjúk­dómi, en núverandi með­ferðir byggja al­mennt á inn­gripi, svo sem sprautum í gler­hlaup augans eða ísetningu lyfja­hylkja. Í til­kynningunni segir Riad Sherif, for­stjóri Ocu­lis, að lok síðustu eftir­fylgni­heimsóknanna marki mikilvægan áfanga fyrir félagið á leiðinni að birtingu niður­staðna í júní. Hann bendir jafn­framt á að Ocu­lis sé með fleiri þróunar­verk­efni á loka­stigi, þar á meðal PIONEER-rannsóknaráætlunina á Privosegtor og PREDICT-1 rannsóknina á Li­camin­limab. Að sögn félagsins eru enn veru­legar óupp­fylltar þarfir í með­ferð við DME. Ocu­lis segir að um ein milljón af þeim 1,8 milljónum sjúklinga sem greinast með DME í Bandaríkjunum fái enga eða ófullnægjandi með­ferð. Félagið vísar jafn­framt til raun­heima­gagna úr IRIS-gagna­grunninum sem bendi til þess að um 60 pró­sent ný­greindra sjúklinga hafi ekki fengið með­ferð innan árs frá greiningu, auk þess sem um 40 pró­sent þeirra sem fá hefðbundna með­ferð svari henni ófullnægjandi. DIAMOND-1 og DIAMOND-2 eru lykil­rannsóknir þar sem sjúklingum var slembi­raðað í hlut­fallinu 1:1 til að fá annaðhvort OCS-01 eða lyf­leysu. Aða­lenda­punktur rannsóknanna er breyting á bestu leiðréttu sjónskerpu, mældri með ET­DRS-stafa­prófi, í viku 52 miðað við upp­haf rannsóknar. Meðal annarra enda­punkta er hlut­fall sjúklinga sem ná að minnsta kosti 15 stafa bata í sjónskerpu og breyting á þykkt sjón­himnu. OCS-01 byggir á einka­leyfis­varinni OPTIREACH-tækni Ocu­lis og inni­heldur dexa­metasón í háum styrk. Sam­kvæmt félaginu er mark­miðið að bæta flutning lyfsins frá yfir­borði augans til aftari hluta þess og þar með skapa með­ferðar­kost sem gæti nýst bæði við snemm­bæra með­ferð og hjá sjúklingum sem svara illa núverandi með­ferðum. Ocu­lis segir að með þessu gæti félagið sótt inn á markað sem sé metinn á um þrjá milljarða dala í Bandaríkjunum.

Share this article