Bandaríski fjárfestingarbankinn Guggenheim hefur hafið greiningu á augnlyfjafyrirtækinu Oculis með kaupráðgjöf og metur bréf félagsins á 75 dali á hlut. Það er langt yfir markaðsgengi félagsins þegar greiningin var unnin, en Oculis var þá skráð á 27,96 dali á hlut á Nasdaq. Það er um 170% yfir genginu þegar greiningin var unnin. Í greiningunni segir að fjárfestingarsagan í Oculis byggist fyrst og fremst á þremur lyfjaþróunarverkefnum félagsins: OCS-01 við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki, Privosegtor við sjóntaugabólgu og Licaminlimab við augnþurrki. Guggenheim leggur þó nær allt virðið í fyrstu tvö verkefnin og metur Licaminlimab ekki inn í grunnmat sitt. Byltingakenndir augndropar Mest skammtímavægi í mati Guggenheim hefur OCS-01, augndropalyf Oculis við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki. Sjúkdómurinn getur valdið versnandi miðjusjón og er í dag fyrst og fremst meðhöndlaður með sprautum eða ígræddum sterameðferðum inn í augað. Slíkar meðferðir geta verið íþyngjandi fyrir sjúklinga og takmarka einnig hvaða augnlæknar geta veitt meðferðina. OCS-01 er hins vegar augndropi sem inniheldur dexametasón, sama virka efni og er í Ozurdex-ígræðslulyfinu. Tækni Oculis á að gera lyfinu kleift að berast aftur í augað, að sjónhimnunni, án sprautu eða ígræðslu. Guggenheim segir að ef OCS-01 nær sambærilegum árangri og Ozurdex, en með augndropum, geti það orðið mikil breyting fyrir sjúklinga og augnlækna Sjá einnig Oculis nær samkomulagi við FDA um lykilrannsókn Í fyrri hluta DIAMOND-rannsóknarinnar sýndi lyfið marktækan bata á sjónskerpu og minnkun vökvasöfnunar í sjónhimnu. Í greiningunni kemur fram að 27,4% sjúklinga sem fengu OCS-01 náðu að minnsta kosti 15 stafa bata á sjónprófi eftir 12 vikur, samanborið við 7,5% í samanburðarhópi. Þá sást minnkun á vökvasöfnun strax eftir tvær vikur, sem Guggenheim telur mikilvæga vísbendingu um að augndropinn nái þangað sem hann á að virka. Næsti stóri áfangi er væntanlegur í júní, þegar Oculis birtir helstu niðurstöður úr tveimur fasa III DIAMOND-rannsóknum. Guggenheim metur 75% líkur á jákvæðri niðurstöðu. Milljón sjúklingar í markhópnum Guggenheim telur bandaríska markaðinn fyrir sjónhimnubjúg af völdum sykursýki vera mjög stóran. Í greiningunni kemur fram að um 1,8 milljónir sjúklinga séu greindar með sjúkdóminn í Bandaríkjunum. Af þeim telur Guggenheim að um ein milljón sjúklinga geti verið strax markhópur fyrir OCS-01, verði lyfið samþykkt. Þar er annars vegar vísað til um 600 þúsund sjúklinga sem eru með væga sjónskerðingu og eru oft aðeins undir eftirliti, meðal annars vegna þess að núverandi meðferðir eru ífarandi. Hins vegar eru um 400 þúsund sjúklingar sem fá nú meðferð en ná ekki nægilega góðum árangri. Guggenheim áætlar að árleg hámarkssala OCS-01 í Bandaríkjunum geti orðið um 1,2 milljarðar dala, eða sem nemur um 165 milljörðum króna á núverandi gengi. Bankinn metur þetta verkefni eitt og sér á 31 dal á hlut í Oculis. Annað stórt tækifæri í sjóntaugabólgu Hitt stóra verkefnið að mati Guggenheim er Privosegtor, lyf sem Oculis þróar við bráðri sjóntaugabólgu. Sjóntaugabólga er bólga í sjóntauginni sem getur valdið skyndilegri sjónskerðingu, verk og varanlegum skaða á taugafrumum. Í dag eru sterar meginmeðferðin. Þeir geta flýtt bata en breyta ekki langtímahorfum sjúklinga með afgerandi hætti. Privosegtor er ætlað að vernda taugafrumur og taugaþræði. Guggenheim bendir á að engin samþykkt meðferð sé til við sjúkdómnum og að lyfið hafi fengið flýtimeðferð hjá bandaríska lyfjaeftirlitinu, auk þess sem samkomulag hefur náðst við FDA um hönnun lykilrannsóknar. Sjá einnig Jákvæðar niðurstöður og FDA-umsókn fyrir lok árs Í fasa II ACUITY-rannsókninni sýndi Privosegtor merki um ávinning á þremur sviðum: sjónstarfsemi, byggingu sjónhimnu og líffræðilegum mælikvörðum á taugaskaða. Guggenheim telur það styðja þá tilgátu að lyfið geti haft raunveruleg taugaverndandi áhrif. Bankinn áætlar að Privosegtor geti náð um tveggja milljarða dala hámarkssölu á heimsvísu, verði lyfið samþykkt, og metur verkefnið á 42 dali á hlut í Oculis. Virðið liggur í tveimur lyfjum Mat Guggenheim á Oculis byggist á því að leggja saman áætlað virði einstakra verkefna félagsins, að teknu tilliti til líkum á árangri. Í grunnsviðsmynd bankans er OCS-01 metið á 31 dal á hlut, Privosegtor á 42 dali og áætluð handbær staða félagsins í árslok 2026 á þrjá dali á hlut. Samtals gefur það 75 dali á hlut. Í bjartsýnni sviðsmynd metur Guggenheim bréfin á 108 dali, en í neikvæðari sviðsmynd á 18 dali. Munurinn ræðst að mestu af því hvort lykilrannsóknir félagsins skili jákvæðum niðurstöðum. Þetta undirstrikar áhættuna. Oculis er enn fyrst og fremst lyfjaþróunarfélag. Tekjur eru litlar, félagið ver miklum fjármunum í rannsóknir og verðmæti þess ræðst að miklu leyti af niðurstöðum klínískra rannsókna, samþykki eftirlitsaðila og síðar markaðssetningu lyfjanna. Guggenheim nefnir meðal helstu áhættuþátta að rannsóknir geti mistekist, óvænt öryggisvandamál komið upp, samkeppni aukist eða félagið þurfi að sækja meira fjármagn áður en það verður sjálfbært. Júní getur orðið vendipunktur Næstu vikur geta orðið afgerandi fyrir Oculis. Í júní er gert ráð fyrir niðurstöðum úr tveimur fasa III-rannsóknum á OCS-01 við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki. Verði niðurstöðurnar jákvæðar gæti félagið lagt inn umsókn til bandarískra yfirvalda á fjórða ársfjórðungi og umsókn í Evrópu á fyrri hluta næsta árs. Fyrir fjárfesta er þetta því skýr vendipunktur. Jákvæðar niðurstöður gætu styrkt fjárfestingarsöguna verulega, en neikvæðar niðurstöður myndu grafa undan stærsta skammtímavægi í mati bankans. Niðurstaða Guggenheim er þó skýr. Bankinn telur Oculis vera sérhæft augnlyfjafyrirtæki með stórt markaðstækifæri í algengum augnsjúkdómi, mögulegt byltingarlyf við sjaldgæfum sjúkdómi og þriðja verkefni í augnþurrki sem gæti bætt við virði ef niðurstöður síðar á árinu verða jákvæðar