Um 142 milljarðar króna hafa þurrkast af markaðsvirði Oculis á tveimur viðskiptadögum eftir að félagið birti niðurstöður úr lykilrannsóknum á augndropalyfinu OCS-01. Gengi bréfa Oculis lokaði í 1.560 krónum í Kauphöllinni í dag og lækkaði um 14,3% í viðskiptum dagsins. Við lokun markaða á föstudag stóð gengið í 3.650 krónum. Lækkunin frá föstudegi nemur 57,3%. Miðað við 67.792.176 útistandandi hluti hefur markaðsvirði Oculis lækkað úr um 247,4 milljörðum króna í um 105,8 milljarða króna. Verðmætatapið nemur því 141,7 milljörðum króna frá lokun markaða á föstudag. Fallið kemur í kjölfar þess að Oculis tilkynnti niðurstöður úr tveimur þriðja stigs rannsóknum á OCS-01, augndropalyfi sem félagið hefur þróað við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki. Rannsóknirnar, DIAMOND-1 og DIAMOND-2, náðu ekki meginmarkmiði sínu um bætta sjónskerpu sjúklinga eftir 52 vikur. Niðurstaðan var mikið áfall fyrir fjárfesta, enda hafði OCS-01 verið eitt mikilvægasta þróunarverkefni félagsins. Lyfið var hugsað sem möguleg fyrsta augndropameðferð við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki, en núverandi meðferðir byggja að stórum hluta á sprautum í auga. Oculis hefur í kjölfarið ákveðið að sækja ekki um markaðsleyfi hjá bandaríska lyfjaeftirlitinu FDA fyrir OCS-01 við þessari ábendingu að svo stöddu. Félagið hefur þó bent á að lyfið hafi sýnt marktæka minnkun á þykkt sjónhimnu, sem var aukamarkmið rannsóknanna. Það dugði hins vegar ekki til að vega upp á móti því að meginmarkmiðið náðist ekki. Viðskiptablaðið greindi í gær frá því að gengishrun Oculis hefði valdið sjóðum Íslandssjóða milljarðatapi. Sjá einnig Gengishrun Oculis veldur sjóðum Íslandssjóða milljarðs tapi Þá var einnig fjallað um að verðmæti hlutar Páls Ragnarssonar, sem hefur verið stór hluthafi í félaginu, hefði lækkað um 15 milljarða króna vegna verðfallsins. Sjá einnig Eign Páls lækkar um 1,5 milljarða vegna verðhruns Oculis Bréf Oculis hafa nú lækkað um 55,7% síðastliðinn mánuð, 39,3% frá áramótum og 36,3% síðastliðið ár, samkvæmt upplýsingum úr Kauphöllinni. Horfa til OCS-05 Fyrir niðurstöðurnar hafði markaðurinn verðlagt Oculis með verulegum væntingum til OCS-01. Árangur í DIAMOND-rannsóknunum hefði getað opnað leið að umsókn um markaðsleyfi í Bandaríkjunum og mögulegri markaðssetningu á lyfinu. Eftir niðurstöðurnar hefur sá hluti sögunnar breyst verulega. Athygli fjárfesta beinist nú að öðrum þróunarverkefnum Oculis og sjóðsstöðu félagsins. Sjá einnig Fá stöðu byltingarkennds lyfs og gengið hækkar um 10% Félagið hefur áður sagt að handbært fé, ígildi handbærs fjár og skammtímafjárfestingar dugi til að fjármagna reksturinn fram á síðari hluta árs 2029. Gengisfallið undirstrikar áhættuna sem fylgir fjárfestingum í líftæknifyrirtækjum. Virði slíkra félaga getur ráðist af fáum lykilrannsóknum og þegar niðurstöður standast ekki væntingar getur markaðsvirði fallið hratt, jafnvel þótt félagið eigi áfram önnur þróunarverkefni og sterka sjóðsstöðu. Lækkun Oculis setti svip á markaðinn í dag. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,3%, en auk Oculis lækkuðu bréf Alvotech um 4,7%, Sjóvár um 2,0% og Icelandair um 2,0%. Heildarvelta á markaði nam 9,2 milljörðum króna. Sú tala litast þó töluvert af viðskiptum með bréf Brims, þar sem veltan nam 6,1 milljarði króna í tengslum við endurkaup félagsins á eigin bréfum vegna Lýsisviðskiptanna. Sjá einnig Guðmundur seldi Brim bréf fyrir 3,1 milljarð