Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Mikil and­staða hjá Mið­flokknum og Flokki fólksins

Read Full Article →

Fjármála- og efnahagsráðherra boðaði undir lok síðasta árs umdeildar breytingar sem snerta bifreiðaeigendur. Í könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið var spurt annars vegar hvort þátttakendur væru ánægðir eða óánægðir með fyrirkomulag við innheimtu kílómetragjalds á bifreiðar, sem breyttist um áramótin. Hins vegar var spurt hvort þátttakendur væru ánægðir eða óánægðir með hækkun vörugjalda á bensín- og dísilbíla. Ef aðeins er tekið tillit til þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar voru 72,4% óánægð með fyrirkomulag um innheimtu kílómetragjalds en 27,6% ánægð. Þegar kemur að vörugjöldunum voru 84,3% óánægð og 15,7% ánægð, af þeim sem tóku afstöðu. Þegar horft er til stjórnmálaskoðana sést að mesta óánægjan með kílómetragjaldið er meðal kjósenda Miðflokksins, eða um 67%. Þar næst komu kjósendur Sjálfstæðisflokksins, þar sem um 62% voru óánægðir en 17% ánægðir. Athygli vekur að kjósendur Flokks fólksins voru hvað óánægðastir, eða um 56%, en fæstir voru ánægðir, eða um 11%. Ánægðastir voru kjósendur Samfylkingarinnar, eða um 34%, en 28% voru óánægðir. Hjá kjósendum Viðreisnar voru 20% ánægðir en 48% óánægðir. Tæplega helmingur kjósenda Framsóknarflokksins tóku ekki afstöðu til spurningarinnar. Langmesta óánægjan með vörugjöldin var aftur hjá kjósendum Miðflokksins, þar sem um 90% voru óánægðir en einungis 3% ánægðir. Næst komu kjósendur Flokks fólksins, þar sem 77% voru óánægðir en 9% ánægðir. Kjósendur Samfylkingarinnar voru óákveðnari, þar sem um 43% svöruðu hvorki né en 19% voru ánægðir og 38% óánægðir. Þá svöruðu 28% kjósenda Viðreisnar hvorki né en 16% voru ánægðir og 56% óánægðir. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article