Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kjósendur stjórnarflokkanna á öndverðum meiði

Read Full Article →

Verðmætasköpun hér á landi er í dag knúin af fjölbreyttum útflutningi, sem byggist að mestu á fjórum meginstoðum. Lengi vel voru ferðaþjónusta, sjávarútvegur og orkusækinn iðnaður helstu stoðirnar en á undanförnum árum hefur tækni- og hugverkaiðnaður sömuleiðis vaxið hratt. Í könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið í mars var spurt hvaða atvinnugrein landsmenn töldu mikilvægasta fyrir íslenskt hagkerfi en langflestir nefndu þar sjávarútveg, eða fjórir af hverjum tíu. Næst kom tækni og nýsköpun með 24%, ferðaþjónustan með 18% og orkuiðnaður með 14%. Gríðarlegur munur er á afstöðu eftir stjórnmálaskoðunum, sérstaklega þegar kemur að sjávarútveginum. Kjósendur Flokks fólksins töldu langflestir að sú grein væri mikilvægust, eða um 60%. Hjá Sjálfstæðisflokknum töldu 50% að sjávarútvegurinn væri mikilvægastur og 48% hjá Miðflokknum. Athygli vekur að hlutfallið er hvað lægst hjá kjósendum hinna stjórnarflokkanna, en hlutfallið er um 27% hjá kjósendum Samfylkingarinnar og 32% hjá kjósendum Viðreisnar. Kjósendur Samfylkingarinnar og Viðreisnar eru þeir einu sem telja sjávarútveginn ekki mikilvægastan heldur telja að tækni og nýsköpun sé mikilvægasta greinin, 38% kjósenda Viðreisnar og 29% kjósenda Samfylkingarinnar. Hjá hinum flokkunum er hlutfall þeirra sem telja tækni og nýsköpun mikilvægasta á bilinu 15-20%. Þegar kemur að ferðaþjónustu telja einungis um 7% kjósenda Flokks fólksins að hún sé mikilvægust en Framsóknarmenn eru hrifnari, þar sem um 28% segja hana mikilvægustu greinina. Kjósendur bæði Framsóknarflokksins og Flokks fólksins telja síður að orkuiðnaður sé mikilvægasta greinin, eða 7% og 8%. Kjósendur Miðflokksins eru aftur á móti hrifnari og telja um 18% að sú grein sé mikilvægust. Nánar er fjallað um málið í veglegu tímriti Frjálsrar verslunar , áskrifendur geta lesið greina hér . Hægt er að kaupa ritið hér .

Share this article