Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Hleður síum Fyrir 13 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Vara við snörpum vindhviðum í kvöld og nótt Brynjólfur Þór Guðmundsson Hætt er við að vindur þvert á vegi fari í allt að 35 metra á sekúndu í vindstrengjum við fjöll á norðvestanverðu landinu seint í kvöld og í nótt. Þá gengur í hvassa sunnanátt. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar vekur athygli á veðurhamnum og nefnir sem dæmi að vindstrengir geti orðið öflugir á norðanverðu Snæfellsnesi, Steingrímsfjarðarheiði, Vatnsskarði og Öxnadalsheiði. Það dregur úr vindi snemma í fyrramálið. Vindstrengurinn verður þvert á vegi. RÚV