Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Varað við snörpum vindhviðum í kvöld og nótt Brynjólfur Þór Guðmundsson Hætt er við að vindur þvert á vegi fari í allt að 35 metra á sekúndu í vindstrengjum við fjöll á norðvestanverðu landinu seint í kvöld og í nótt. Þá gengur í hvassa sunnanátt. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar vekur athygli á veðurhamnum og nefnir sem dæmi að vindstrengir geti orðið öflugir á norðanverðu Snæfellsnesi, Steingrímsfjarðarheiði, Vatnsskarði og Öxnadalsheiði. Það dregur úr vindi snemma í fyrramálið. Vindstrengurinn verður þvert á vegi. RÚV NýttMENNING OG DÆGURMÁL Íslenska Sigur heiðninnar og list hirðskáldanna Með orðalagi úr menningarstríði nútímans mætti kalla dróttkvæðin óskiljanlega orðræðu í bergmálshelli hinnar menntuðu elítu. Málfræðingurinn Haukur Þorgeirsson fjallar um forna ljóðlist í Víðsjá á Rás 1. Fyrir 19 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Popptónlist Les ljóð til að læra íslensku Jose Anderson er mexíkósk-íslenskur tónlistarmaður sem gefur út tónlist undir nafninu Andervel. Hann var að gera lag með Sigurlaugu Thorarensen (Sillu) og sagði hlustendum Popplands frá. Fyrir 25 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Saksóknarar krefjast réttarhalda yfir illræmdum fjöldamorðingja vegna óupplýsts morðs Saksóknarar í Frakklandi krefjast þess að réttað verði að nýju vegna ólokins máls yfir illræmdum fjöldamorðingja sem situr í lífstíðarfangelsi fyrir ellefu morð. Þessu máli var vísað frá sakamáladómstóli fyrir 37 árum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Danmörk Íslendingur sem lést í fallhlífarslysi var nemandi við lýðháskóla Íslendingur sem lést í fallhlífarslysi í Danmörku var nemandi við Lýðháskóla á Fjóni. Nemendum bauðst að læra fallhlífarstökk. Forstöðumaður við skólann segir starfsfólk og nemendur harmi slegið. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Hlaup Þetta er í raun algjör vísindaskáldskapur Hlynur Andrésson, Íslandsmethafi í maraþonhlaupi, líkir þróuninni á tímunum sem menn eru farnir að hlaupa maraþon á við vísindaskáldskap. Tveir hlauparar rufu tveggja klukkustunda múrinn í gær í Lundúnamaraþoninu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kona í efsta sæti á 33 listum af 182 Af 182 framboðslistum í sveitarstjórnarkosningunum í vor eru 33 með konu í oddvitasæti, segir prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Yfir 50 prósent kjörinna fulltrúa í síðustu kosningum voru konur. Það náist almennt ekki án kynjakvóta. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Breska konungsfjölskyldan Heimsókn Karls III til Bandaríkjanna stendur óhögguð þrátt fyrir árásina Karl III Englandskonungur er væntanlegur til Washington síðdegis. Árás sem beindist gegn Trump og ráðherrum í ríkisstjórn hans á laugardagskvöld hefur ekki nema örlítil áhrif á heimsóknina. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Þrír táningar ákærðir fyrir að skipuleggja sprengjuárás í Ósló Tveir piltanna, 16 og 17 ára, eru sagðir vinna fyrir glæpagengið Foxtrot og eru grunaðir um að hafa reynt að ráða fleiri unglinga til að fremja ódæðisverk í höfuðborg Noregs. Ákæran tengist spreningu í borginni í september. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Áhugi á mögulegum aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið Hagsmunaðilar í evrópskum sjávarútvegi hafa mikinn áhuga á mögulegum aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið. Þetta segja íslenskir útgerðarmenn sem sóttu sjávarútvegssýningu í Barcelona í síðustu viku. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Innkalla skyndinúðlur Fréttastofa RÚV Dai Phat Asian supermarket hefur innkallað Buldak Spicy ramen hot chicken með carbonara-bragði. Í vörunni er of mikið af 3-MCPD, aðskotaefni sem getur breytt eiginleikum og hollustu matvæla. Varan sem var innkölluð er í umbúðum með geymsluþol til 28. ágúst. Matvælastofnun tilkynnti Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um innköllunina. Fyrirtækið bendir fólki sem hefur keypt vöruna á að neyta hennar ekki heldur farga henni eða skila henni í verslunina þar sem hún var keypt. Umbúðir innkölluðu vörunnar. Dai Phat Asian supermarket Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Varað við salmonellu í nautahakki í þriðja skipti á tveimur vikum Matvælastofnun varar við neyslu á nautahakki vegna gruns um salmonellu. Fyrr í þessum mánuði var varað við tveimur nautaafurðum frá öðrum framleiðanda vegna gruns um salmonellu. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Leikhúsgagnrýni Minningardagur: Leikhúsið er gætt þeim krafti að geta skapað listaverk úr sárum minningum „Í Minningardegi var ekki fluttur neinn gleðiboðskapur en sýningin um saklausa mennsku andspænis djöfullegri ómennsku var svo sterk að andi kærleika og samúðar fyllti huga þeirra sem gengu hljóð út úr leikhúsinu,“ segir Trausti Ólafsson. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Olíuverð hækkar eftir að fundahöldum var aflýst Olíuverð hækkaði um tvö prósent í morgun. Utanríkisráðherra Írans kennir kröfuhörku Bandaríkjastjórnar um að ekki hafi náðst samningar. Forseti Bandaríkjanna segir Írana hafa sent sér bættar tillögur. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Dans DR mátti ekki synja dansara um félagsaðild þó kvartað hafi verið yfir ósæmilegri hegðun Dómstóll ÍSÍ hefur fellt úr gildi synjun Dansfélags Reykjavíkur um félagsaðild manns. Niðurstaðan er byggð á skorti á lagagrundvelli þar sem vísað var til eldri ósæmilegra atvika við yngri iðkendur sem ekki leiddu til viðurlaga. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Enn skelfur jörð á Reykjaneshrygg og í Bárðarbungu Brynjólfur Þór Guðmundsson Jörð hélt áfram að skjálfa á Reykjaneshrygg og í Bárðarbungu í nótt. Þar hófst skjálftahrina á laugardag. Stærsti skjálftinn á Reykjaneshrygg í nótt var 3,0 að stærð, 1,8 kílómetra norðvestur af Geirfugladrangi. Þar urðu einnig nokkrir skjálftar um 2,0 eða stærri í gær og í nótt. Nokkrir skjálftar um og yfir tveimur hafa orðið í Bárðarbungu síðasta sólarhringinn. Jarðskjálftar eru algengir á báðum þessum stöðum. Rauðir blettir tákna nýjustu skjálftana á korti Veðurstofunnar. Veðurstofan Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Tveir handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar Brynjólfur Þór Guðmundsson Maður varð fyrir stórfelldri líkamsárás á sunnanverðu höfuðborgarsvæðinu. Hann er ekki í lífshættu. Þetta kemur fram í samantekt lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um tíðindi kvöldsins og næturinnar. Tveir voru handteknir vegna árásarinnar og lögregla vinnur áfram að rannsókninni. Fimm gistu fangaklefa lögreglu í morgun eftir atburði gærkvöldsins og næturinnar. Einn var handtekinn eftir að hafa verið staðinn að akstri undir áhrifum fíkniefna og áfengis með fíkniefni í bílnum. Ölvaður ökumaður var fluttur í fangaklefa eftir árekstur og blóðsýnatöku. Lögregla að störfum. Safnmynd. RÚV Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hvassviðri eða stormur í kvöld og nótt Rigning og allnokkur vindur einkenna veðrið í dag. Fremur svalt verður í veðri þegar líður á vikuna. Hvassviðri eða stormur verður í vindstrengjum á norðvestanverðu landinu í kvöld og nótt. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Varð ekki hræddur þegar hann heyrði skothvellina Bandaríkjaforseti segist ekki vita hvort hann var skotmark árásarmannsins sem skaut úr byssu á kvöldverði blaðamanna Hvíta hússins í Washington í fyrrinótt. Trump blæs á allar samsæriskenningar um að árásin hafi verið sviðsett. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Fimleikar Íslandsmeistarinn fléttar saman fimleika og fasteignasölu Fimleikamaðurinn Ágúst Ingi Davíðsson hefur í nægu að snúast. Samhliða því að sanka að sér verðlaunum í fimleikum selur hann fasteignir. Ágúst segir starfið henta afreksíþróttamennsku vel. Hann eigi nóg inni og stefni á Ólympíuleika. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu 10 særðust í árásum í Odesu Brynja Dögg Friðriksdóttir Maður virðir fyrir sér húsarústir eftir árásir rússneska hersins á Odesu 24. apríl 2026. Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / IGOR MASLOV Að minnsta kosti tíu særðust í drónaárásum rússneska hersins á úkraínsku hafnarborgina Odesu í nótt. Fyrstu sprengingarnar urðu um klukkan hálftvö að staðartíma samkvæmt úkraínska fréttamiðlinum Kyiv Independent. Haft er eftir Oleh Kiper, héraðsstjóra Odesu, að árásirnar hafi beinst að fjölbýlishúsi og hóteli í borginni. Rússneski herinn hefur gert ítrekaðar árásir á borgina frá því að hann hóf allherjarinnrás í Úkraínu fyrir rúmum fjórum árum. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Litáen Mikil mótmæli í Vilnius gegn frumvarpi um breytingar á lögum um ríkisútvarpið LRT Frumvarp um breytingar á lögum um ríkismiðilinn LRT hefur verið rætt á litáíska þinginu undanfarið. Fjölmiðlafólk og almenningur hefur gagnrýnt frumvarpið og sjöttu mótmælin gegn því voru á laugardaginn. 27. apríl 2026 kl. 2:15ERLENDAR FRÉTTIR Flóttafólk Franska strandgæslan bjargaði 119 flóttamönnum Brynja Dögg Friðriksdóttir Franska strandgæslan og bátur flóttafólks á Ermasundinu, 27. september 2025. Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / FADEL DAWOD Franska strandgæslan bjargaði 119 flóttamönnum á Ermarsundi á laugardaginn. Fólkið var að reyna að komast yfir sundið til Bretlands á litlum bátum. Einn flóttamaður var meðvitundarlaus og var fluttur með þyrlu á spítala í Boulogne á norðurströnd Frakklands. Frakkar og Bretar skrifuðu undir þriggja ára samning á fimmtudaginn um að stöðva flóttamenn sem reyna að sigla yfir Ermarsund. Bresk stjórnvöld ætla að auka greiðslur til franskra stjórnvalda og taka þátt í að fjármagna aðgerðirnar. Á síðasta ári reyndu að minnsta kosti 29 flóttamenn að sigla yfir Ermarsund. Á þessu ári hafa sex látist við að reyna að fara yfir sundið. 27. apríl 2026 kl. 1:10ERLENDAR FRÉTTIR Tjad 42 drepnir í átökum um vatnsbrunn Brynja Dögg Friðriksdóttir Flóttamenn frá Súdan bíða eftir því að sækja vatn í Farchana-flóttamannabúðunum í Austur-Tjad í apríl 2024. Mikill vatnsskortur er á þessu svæði, sem bitnar bæði á íbúum þess og flóttamönnum sem flúið hafa stríðið í Súdan yfir til Tjad. Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA