- What: The Icelandic Meteorological Office warns of strong winds and gusts in eastern Iceland.
- Impact: Travelers in vehicles susceptible to wind should be cautious.
Veðurstofan varar við hvössum vindi og snörpum vindhviðum austan Öræfa og á Austfjörðum allt fram á þriðjudag. Ekki hefur verið gefin út formleg viðvörun samkvæmt litakerfi Veðurstofunnar en veðurfræðingur varar við vindinum í athugasemd á vef Veðurstofunnar. Spáð er þrettán til átján metrum á sekúndu og vindur getur orðið mun meiri í snörpum vindhviðum. Því er ráðlegt fyrir vegfarendur að hafa vindinn í huga, sérstaklega þeir sem eru í farartækjum sem taka á sig vind. Mynd úr safni.Ágúst Ólafsson / RÚV