Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Edda að hætta hjá Eimskip

Read Full Article →

Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri innanlandssviðs Eimskips, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu, að því er kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar. Edda mun sinna störfum sínum fram á sumarið eða þar til ráðið verður í starfið. Edda hefur starfað sem framkvæmdastjóri innanlandssviðs Eimskips frá árinu 2024. Hún hóf fyrst störf hjá félaginu sem markaðs- og samskiptastjóri árið 2019 og tók í framhaldinu við stöðu framkvæmdastjóra mannauðs- og samskiptasviðs félagsins árið 2020. Þar áður starfaði hún hjá Íslandsbanka í 12 ár í ýmsum hlutverkum, síðast sem forstöðumaður sölu- og viðskiptastýringar á Fyrirtækja- og fjárfestasviði bankans. „Síðustu sjö ár hafa verið viðburða- og lærdómsrík á miklum umbreytingartímum hjá Eimskip. Mig langar að þakka frábæru samstarfsfólki, stjórn og viðskiptavinum kærlega fyrir gott samstarf. Vilhelm forstjóra langar mig að þakka sérstaklega fyrir einstaka vináttu, traust og tækifæri síðustu ár. Ég óska Eimskip og samstarfsfólki alls hins besta," segir Edda Rut . „Edda hefur komið að fjölbreyttum verkefnum innan Eimskips síðustu ár og leitt þar mikilvægar breytingar m.a. á menningu félagsins og á rekstri Innanlandssviðs. Ég vil þakka henni fyrir frábært samstarf á undanförnum árum og óska henni góðs gengis á nýjum vettvangi,“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson , forstjóri Eimskips.

Share this article