Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Forstjóri finnur friðinn í laxveiði

Read Full Article →

Öryggismiðstöðin réð nýlega Eddu Rut Björnsdóttur sem forstjóra fyrirtækisins en hún mun taka við af Ragnari Þór Jónssyni sem hefur gegnt starfi forstjóra undanfarin tuttugu ár. Hann óskaði nýlega eftir því að láta af störfum en mun þó taka sæti í stjórn félagsins. Edda kemur til Öryggismiðstöðvarinnar frá Eimskip þar sem hún hefur starfað frá árinu 2019. Hún hefur gegnt fjölbreyttum stjórnunarstöðum hjá félaginu og starfaði síðast sem framkvæmdastjóri innanlandssviðs. Þar áður starfaði hún hjá Íslandsbanka í tólf ár í stjórnunar- og sérfræðihlutverkum, síðast sem forstöðumaður sölu- og viðskiptastýringar á fyrirtækja- og fjárfestasviði bankans. „Mér hefur alltaf þótt mjög gaman að vinna. Ég byrjaði ung að vinna og það hefur líka alltaf verið áhugamál hjá mér að spá í hvað væri að gerast tengt vinnunni hverju sinni,“ segir Edda sem hóf störf í BT eftir að hafa flutt til Reykjavíkur frá Suðurnesjum 19 ára gömul. Nánar er fjallað um Eddu í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article