Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“

  • What: The Icelandic government is investing 1.8 billion króna in sports infrastructure and development across the country.
  • Impact: The funding aims to improve sports opportunities, especially in rural areas, and support elite athletes.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.2.2026 | 16:20 „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Inga Sæland með Willum Þór Þórssyni, forseta ÍSÍ og Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ fyrr í dag. mbl.is/Eyþór Inga Sæland, mennta-, barna- og íþróttamálaráðherra, segir samninga sem undirritaðir voru fyrr í dag og snúa að því að leggja grunninn að uppbyggingu íþróttastarfs vera risastórt skef fyrir íþróttahreyfinguna um land allt. Inga undirritaði í dag fimm samninga með Willum Þór Þórssyni, forseta ÍSÍ, Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ, og Þórði Árna Hjaltested, formanni Íþróttasambands fatlaðra. Með samningunum er lögð áhersla á að bæta og og jafna tækifæri fólks til íþróttaiðkunar, einkum á landsbyggðinni, og að styðja betur við afreksíþróttafólk. Heildarfjárframlagið í samningunum fimm nemur samtals um 1,8 milljörðum króna. Frétt af mbl.is Tæpir tveir milljarðar í uppbyggingu íþróttastarfs Upphafið að bjartri framtíð „Þetta er risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna okkar út um allt land,“ segir Inga í samtali við mbl.is. „Við erum að snerta á nánast öllu með þessum samningi sem lýtur að fötluðum börnum, ungmennum og afreksíþróttafólkinu okkar.“ Inga segir samningana vera upphafið að bjartri framtíð og nefnir að hún og Willum Þór, forseti ÍSÍ, gangi í takt hvað varðar samstarfið. „Við munum reyna að gera okkar besta og betur, bara á morgun gerum við betur en í dag.“ Inga og Þórður Árni Hjaltested, formaður Íþróttasambands fatlaðra, undirrita samning. mbl.is/Eyþór Leggur áherslu á að börnum verði ekki mismunað Ráðherrann bætir við að hún sé nýtekin við ráðuneytinu og því margt sem hún þurfi að læra. Hins vegar vanti ekki hjá henni viljann og nefnir Inga að hún sé sérstaklega ákveðin í að leggja áherslu á að börnum verði ekki mismunað eftir búsetu eða efnahag. „Við erum að sjá börn sem hafa getað tekið þátt í því að æfa með félaginu sínu í heimabyggð en þegar kemur að keppnisferðum og öðru slíku þá eru ekki til fjármunir heima fyrir til þess að kosta þessar ferðir. Þetta á ekki að eiga sér stað. Þarna eru margir litlir væntanlegir afreksmenn- og konur sem hafa ekki tækifæri á því að fá að fylgja sínum jafnöldrum í íþróttinni af því að það er bágur efnahagur heima fyrir. Þannig að ég segi, hér eins og annars staðar: Ég vil ekki mismuna neinum eftir efnahag eða búsetu og ég er þar líka þegar lýtur að börnunum okkar í íþróttahreyfingunni,“ segir ráðherrann að lokum. „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Foreldrar telja andlega heilsu barna verri en áður Hið opinbera á ekki að standa eitt í námsgagnagerð Mikið áfall fyrir leikmanninn unga Engin vitneskja né ásetningur um að fremja hryðjuverk ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Ólína tekur við sem settur rektor „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Foreldrar telja andlega heilsu barna verri en áður Hið opinbera á ekki að standa eitt í námsgagnagerð Mikið áfall fyrir leikmanninn unga Engin vitneskja né ásetningur um að fremja hryðjuverk ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns „Mjög ánægð að fá öll börnin saman aftur“ „Hvar eru þessir eftirlitsaðilar?“ Sindri mættur fyrir dóm Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson

Share this article