- What: The Icelandic government is investing 1.8 billion króna in sports infrastructure and development across the country.
- Impact: The funding aims to improve sports opportunities, especially in rural areas, and support elite athletes.
Íþróttir | mbl | 11.2.2026 | 16:20 | Uppfært 18:32 „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Inga Sæland með Willum Þór Þórssyni, forseta ÍSÍ og Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ fyrr í dag. mbl.is/Eyþór Inga Sæland, mennta-, barna- og íþróttamálaráðherra, segir samninga sem undirritaðir voru fyrr í dag og snúa að því að leggja grunninn að uppbyggingu íþróttastarfs vera risastórt skef fyrir íþróttahreyfinguna um land allt. Inga undirritaði í dag fimm samninga með Willum Þór Þórssyni, forseta ÍSÍ, Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ, og Þórði Árna Hjaltested, formanni Íþróttasambands fatlaðra. Með samningunum er lögð áhersla á að bæta og og jafna tækifæri fólks til íþróttaiðkunar, einkum á landsbyggðinni, og að styðja betur við afreksíþróttafólk. Heildarfjárframlagið í samningunum fimm nemur samtals um 1,8 milljörðum króna. Frétt af mbl.is Tæpir tveir milljarðar í uppbyggingu íþróttastarfs Upphafið að bjartri framtíð „Þetta er risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna okkar út um allt land,“ segir Inga í samtali við mbl.is. „Við erum að snerta á nánast öllu með þessum samningi sem lýtur að fötluðum börnum, ungmennum og afreksíþróttafólkinu okkar.“ Inga segir samningana vera upphafið að bjartri framtíð og nefnir að hún og Willum Þór, forseti ÍSÍ, gangi í takt hvað varðar samstarfið. „Við munum reyna að gera okkar besta og betur, bara á morgun gerum við betur en í dag.“ Inga og Þórður Árni Hjaltested, formaður Íþróttasambands fatlaðra, undirrita samning. mbl.is/Eyþór Leggur áherslu á að börnum verði ekki mismunað Ráðherrann bætir við að hún sé nýtekin við ráðuneytinu og því margt sem hún þurfi að læra. Hins vegar vanti ekki hjá henni viljann og nefnir Inga að hún sé sérstaklega ákveðin í að leggja áherslu á að börnum verði ekki mismunað eftir búsetu eða efnahag. „Við erum að sjá börn sem hafa getað tekið þátt í því að æfa með félaginu sínu í heimabyggð en þegar kemur að keppnisferðum og öðru slíku þá eru ekki til fjármunir heima fyrir til þess að kosta þessar ferðir. Þetta á ekki að eiga sér stað. Þarna eru margir litlir væntanlegir afreksmenn- og konur sem hafa ekki tækifæri á því að fá að fylgja sínum jafnöldrum í íþróttinni af því að það er bágur efnahagur heima fyrir. Þannig að ég segi, hér eins og annars staðar: Ég vil ekki mismuna neinum eftir efnahag eða búsetu og ég er þar líka þegar lýtur að börnunum okkar í íþróttahreyfingunni,“ segir ráðherrann að lokum. Hættir skyndilega og stuðningsmenn brjálaðir Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Viktor Gísli til Guðjóns Vals? Stór miðill fjallar um „furðulegar“ fréttir frá Íslandi Myndskeið: Lygileg uppákoma í norsku sjónvarpi Kærastan tjáir sig um framhjáhaldið „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Frank rekinn frá Tottenham Dregur sig úr landsliðshópnum Fyrrverandi landsliðsmaður á leið í fangelsi Myndskeið: Rosaleg slagsmál í NBA í nótt Rekinn frá Chelsea Sesko bjargaði stigi en fullkomna byrjunin á enda Góðar fréttir fyrir Liverpool og Szoboszlai Hvað var Amorim að spá? Mamman þénar meira en leikmenn stórveldisins Starfið hangir á bláþræði Tilbúnir að greiða 17 milljarða fyrir miðjumanninn Frá keppni eftir höfuðhögg Bylting fyrir íslenskan körfubolta Myndskeið: Lindsey Vonn féll hræðilega í fyrstu ferð Landsliðsþjálfarinn á hlægilegum launum Hvað er að þessum Dönum? Hótuðu að senda mafíuna á íslensku stelpurnar Kallaði ólympíufara „algjöran lúser“ Trump: „Hræðileg sýning“ Áfram heldur niðurskurðurinn hjá Sýn Lygilegar lokamínútur í stórleiknum á Anfield Viktor Gísli átti stórleik Sakaður um að vanvirða Schumacher Fleira áhugavert Sindri mættur fyrir dóm „Við erum niðurbrotin“ „Forsætisráðherra er bara að ljúga að þjóðinni“ Mestu vonbrigðin í forstjóratíð Runólfs Hættir skyndilega og stuðningsmenn brjálaðir Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Viktor Gísli til Guðjóns Vals? Stór miðill fjallar um „furðulegar“ fréttir frá Íslandi Myndskeið: Lygileg uppákoma í norsku sjónvarpi Kærastan tjáir sig um framhjáhaldið „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Frank rekinn frá Tottenham Dregur sig úr landsliðshópnum Fyrrverandi landsliðsmaður á leið í fangelsi Myndskeið: Rosaleg slagsmál í NBA í nótt Rekinn frá Chelsea Sesko bjargaði stigi en fullkomna byrjunin á enda Góðar fréttir fyrir Liverpool og Szoboszlai Hvað var Amorim að spá? Mamman þénar meira en leikmenn stórveldisins Starfið hangir á bláþræði Tilbúnir að greiða 17 milljarða fyrir miðjumanninn Frá keppni eftir höfuðhögg Bylting fyrir íslenskan körfubolta Myndskeið: Lindsey Vonn féll hræðilega í fyrstu ferð Landsliðsþjálfarinn á hlægilegum launum Hvað er að þessum Dönum? Hótuðu að senda mafíuna á íslensku stelpurnar Kallaði ólympíufara „algjöran lúser“ Trump: „Hræðileg sýning“ Áfram heldur niðurskurðurinn hjá Sýn Lygilegar lokamínútur í stórleiknum á Anfield Viktor Gísli átti stórleik Sakaður um að vanvirða Schumacher Fleira áhugavert Sandur hleðst upp við Dyrhólaey „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Nýtt framboð í Grímsnesinu