Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fjórhjólaferðalögin eru ævintýri

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.4.2026 | 23:51 Fjórhjólaferðalögin eru ævintýri Að vera á greiðri leið úti í náttúrunni, á kraftmiklu tæki og í góðu veðri skapar einstaka tilfinningu, segir Guðbergur í viðtalinu. mbl.is/Hákon Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Farkostirnir eru frábærir og ferðalög á þeim eru ævintýri. Að vera á greiðri leið úti í náttúrunni, á kraftmiklu tæki og í góðu veðri skapar einstaka tilfinningu, enda nýtir maður gjarnan lausar stundir til ferðalaga upp um fjöll og firnindi,“ segir Guðbergur Reynisson í Reykjanesbæ. Nýlega var á vettvangi Ferðaklúbbsins 4x4 stofnuð sérstök nefnd eða deild innan klúbbsins þar sem fólk sem ferðast um á buggy-bílum og fjórhjólum hefur sinn vettvang. Margir óformlegir hópar þeirra sem þetta sport stunda eru til, en nú er vettvangurinn orðinn formlegur. Á því segir Guðbergur hafa verið mikla þörf, bæði til að sameina rödd og styrk í félagslegu starfi og hagsmunagæslu ýmiss konar. „Við finnum fyrir því að talsvert er að sportinu þrengt, svo sem með meira regluverki. Ekki síður viljum við veita fræðslu í okkar eigin röðum og sporna gegn utanvegaakstri. Við viljum bara hafa hlutina í lagi svo allt rúlli þetta vel og sé skemmtilegt,“ segir Guðbergur. Túr um torfæra vegi Talið er að í landinu séu til og á skrá 2.000-3.000 buggy-bílar og fjórhjól; tæki sem margir nota til dæmis við bústörf í sveitum en margir líka til skemmiferða. Í síðarnefnda hópnum eru þau sem hittust á dögunum í iðnaðarhverfinu syðst í Hafnarfirði, þaðan sem lagt var upp í leiðangur. Farið var um Krýsuvíkurvíkurveg, að Kleifarvatni og þaðan svo áfram um Suðurstrandarveg til vesturs í Grindavík og alla leiðina að Reykjanestá. Þaðan var svo, frá Reykjanesvirkjun, farið um línuveg nærri Stapafelli aftur inn í Hafnarfjörð. Túrinn tók tæplega hálfan daginn, brölt um torfæra vegi í stórbrotinni náttúru steinsnar frá mesta þéttbýli landsins. Frá Reykjanes á Font Á 6-7 árum hafa buggy- og fjórhjólamenn oft hópar sig saman og farið í langar ferðir landshorna á milli. Ein þeirra bara yfirskriftina Horn í horn, en þá var á nokkrum dögum farið frá Reykjanestá á Font á Langanesi. Þræddir voru vegir og slóðar um hálendið, svo sem fyrir norðan Vatnajökul og þaðan út á annesið sem skagar norður í íshafið. Einnig minnist Guðbergur ferða frá Dalatanga fyrir austan þvert yfir landið til vesturs að Látrabjargi. Það var margra daga ferð með alls konar slarki og ævintýrum. – Morgunblaðið hefur líka sagt frá mönnum sem slörkuðu á fjórhjólum um Vestfirðina og ýmsa slóða þar, svo sem í Ísafjarðardjúpinu og hina hrikalegu Svalvogaleið sem er á skaganum milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Suðurlandshálendið er líka algjört ævintýraland þeirra sem ennan ferðamáta velka „Í brölti um fjöll og firnindi kynnist maður landinu og fólkinu á mjög skemmtilegan hátt. Bili tæki á ferðum er yfirleitt lítið má að leita til bænda í grendinni sem óðfúsir vilja hjálpa og leggja til aðstöðu og verkfæri,“ segir Guðbergur og að síðustu: Jamil reddar öllu „Ég man líka eftir leiðangri þegar lega fór í hjólinu hjá mér þegar við vorum saman nokkrir félagar staddir norðarlega við Kjalveg. Þarna hefðu góð ráð verið dýr í flestum tilvikum, en af rælni hringdum við í Jamil Allansson sem rekur bílapartasölu í Mosfellsbæ og er þekktur fyrir að redda öllu. Jú, hann átti leguna sem þurfti og það sem meira er; Jamil, sem er einkaflugmaður, fór bara í loftið og skaust með stykkið til okkar. Lenti á rellunni sinni á litlum flugvelli sem er við Blöndulón. Þetta kalla ég þjónustu í lagi – lítið ævintýri en þau gerast svo oft í fjórhjóla- og buggyferðum.“ Í brölti um fjöll og firnindi. Hér eru fjórhjólamenn á Reykjanesskaganum í sl. viku. Farið var þar um torfærur, en þó aldrei í utanvegaakstur. mbl.is/Hákon Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fjórhjólaferðalögin eru ævintýri Neitar að klæðast skotheldu vesti eftir banatilræði Ný forysta Stúdentaráðs Háskóla Íslands kjörin Michael Jackson tekur við Burnley Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Eru tilbúin og þyrstir í að komast heim Svartur blettur á jafnréttisparadísinni Íslandi Bandalag í bígerð um skipaumferð um Hormússund Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Fjórhjólaferðalögin eru ævintýri Neitar að klæðast skotheldu vesti eftir banatilræði Ný forysta Stúdentaráðs Háskóla Íslands kjörin Michael Jackson tekur við Burnley Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eru tilbúin og þyrstir í að komast heim Biðu ekki boðanna og níddust á samfélaginu Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás

Share this article