Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Búa sig undir fjölda ferðamanna vegna sólmyrkvans

Read Full Article →

Viðbúnaður hefur verið aukinn víða á Vesturlandi og Vestfjörðum vegna fjölda ferðamanna sem búist er við þegar almyrkvinn skellur á á miðvikudag. Viðbragðsaðilar undirbúa sig fyrir aukið álag og ferðaþjónustan gerir sömuleiðis ráð fyrir mikilli aðsókn. Viðbragðsaðilar undirbúa sig Arna Margrét Arnardóttir, formaður svæðisstjórnar Landsbjargar, segir björgunarsveitir hafa verið að undirbúa sig um nokkurt skeið og óskað hafi verið eftir liðsauka annars staðar frá. Fleiri viðbragðsaðilar koma að undirbúningnum, meðal annars lögregla, sjúkraflutningar og slökkvilið. Fulltrúar Rauða krossins eru einnig komnir vestur. Fundað var í kvöld þar sem farið var yfir mannafla, hvað þurfi að vera til taks og hvaða aðstæður þurfi að vera búið undir. Erfitt að áætla fjöldann Petrína Sigrún Helgadóttir, eigandi Sjoppunnar á Patreksfirði, segir erfitt að undirbúa reksturinn þegar óljóst sé hversu margir ferðamenn muni koma. „Maður veit ekki hvort það eru að koma 100 manns, 10.000 manns eða meira,“ segir hún. Petrína segir þó að fyrirtækið hafi reynt að tryggja nægar birgðir og nýta frystipláss sem sé til staðar í öðrum húsum. Fyrirtæki á svæðinu ætli einnig að laga opnunartíma að ástandinu. Samlokur og heit súpa verða meðal þess sem verður á boðstólum en hún segir mikilvægt að hafa matseðilinn einfaldan svo hægt sé að afgreiða fólk hratt. „Við vonum bara að þetta fari friðsamlega fram og ekkert slæmt gerist. Maður veit ekkert hvað maður á von á mörgum en mér sýnist bara allt vera að fyllast hérna,“ segir Petrína. RÚV í beinni útsendingu Ríkisútvarpið verður með beina útsendingu víða að af landinu á miðvikudag. Útsendingin hefst klukkan eitt og stendur fram að fréttum klukkan sjö og áfram eftir þær til klukkan átta. Útsending verður meðal annars frá Bolafjalli við Bolungarvík, Látrabjargi, Selárdal og Hellissandi, auk höfuðborgarsvæðisins. Fylgst verður með undirbúningi, umferð og ferðamönnum og rætt við sérfræðinga og fólk á svæðunum. Þungbúið suðvestanlands Veðurspá gerir ráð fyrir lágskýjum víða um land þegar myrkvinn verður. Líklegast er að skýjahulan verði þynnst á norðanverðu Snæfellsnesi, á Breiðafirði og sunnanverðum Vestfjörðum. Á suðvesturhorninu er hins vegar búist við þungbúnum aðstæðum og litlum líkum á að sólmyrkvinn sjáist þar vel. Í spilaranum hér að neðan má horfa á umfjöllun um sólmyrkvann í kvöldfréttum í heild sinni. Björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar efla viðbúnað vegna mikils fjölda ferðamanna á Patreksfirði vegna sólmyrkvans, en óvíst er hversu margir mæta. Skýjað verður víða um land þegar myrkvinn skellur á.

Share this article