Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fjárfestingar geta fjölgað iðkendum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 2.6.2026 | 9:25 Fjárfestingar geta fjölgað iðkendum Fótbolti. Alltaf vinsælasta greinin í íþróttum sem sveitarfélögin í landinu styðja vel við, svo miklu sem starfið skiptir fyrir samfélag og lýðheilsu. mbl.is/Karítas Svein Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Lítil sveitarfélög geta stutt mjög vel við íþróttastarf ef pólitískur vilji og stefna er til staðar. Framlög geta verið misjöfn eftir sveitarfélögum en vísbendingar eru um að fjárfesting í íþróttum og mannvirkjum sem þarf leiði til þess að iðkendum fjölgi. Þetta segir í samantekt sem birtist í nýjasta tölublaði Skinfaxa, tímariti Ungmennafélags Íslands. Fjölmennustu sveitarfélög landsins veita yfirleitt vel til þessara mála, en þau fámennari gera oft líka vel ef miðað er við framlög deilt á hvern íbúa. Í samantekt Skinfaxa er byggt á upplýsingum úr ársreikningum sveitarfélaga fyrir árið 2024. Þar kemur fram að Grindavík er sá staður á landinu sem best gerir við íþróttirnar, framlög úr bæjarsjóði til þess málaflokks voru á umræddu ári 536 þúsund á mann. Þarna ber að taka fram að Grindavík var rýmd 10. nóvember 2023 vegna aðsteðjandi náttúruvár. Íbúar dreifðust víða og skráðu lögheimili sitt á nýjum stað. Starf á vegum ungmennafélags bæjarins hélt þó áfram á öðrum vettvangi, þá með stuðningi Grindavíkurbæjar, svo miklu máli sem slíkt þótt skipta fyrir samheldni og bæjarsál. Önnur sveitarfélög sem verja miklu til íþróttastarfs eru næst á eftir Grindavík, Strandabyggð með 280 þúsund kr. per íbúa. Þá Grímsnes- og Grafningshreppur með 257 þús. kr. á mann, svo Vopnafjörður, Fjarðabyggð, Kaldrananeshreppur á Ströndum, Fjallabyggð, Dalvík og Vesturbyggð, öll meira en 200 þús. kr. á hvern og einn sem þarna býr. Eðlilega er það Reykjavík, fjölmennasta sveitarfélag landsins, sem mest setur í íþróttirnar, það er 15,7 milljarða kr. árið 2024. Í Kópavogi voru þessi framlög samanlögð 4,5 ma. kr., 3,1 ma. kr. í Garðabæ og rétt tæpir 3,0 ma. kr. á Akureyri og í Hafnarfirði. Oft er talað um Akranes sem íþróttabæ og það er með réttu gert, skv. því sem könnunin í Skinfaxa staðfesti. Velflest börnin þar í bæ stunda íþróttir og sama má segja um staði eins og Ísafjörð, Akureyri, Sauðárkrók, Árborg og Bláskógabyggð. Einnig er þátttakan afar góð á Hellu, Hvolsvelli, á Kirkjubæjarklaustri og á Hornafirði, samanber að börnin þar stunda og keppa í fleiri en einni grein. Styður tengsl Þar sem íþróttafélag og sveitarfélag vinna vel saman virðist árangur mestur, segir í Skinfaxa. Enn fremur að góðar samgöngur á milli og innan sveitarfélaga hafi jákvæð áhrif á þátttöku í íþróttum. Margþættur ávinningur sé að því fyrir sveitarfélög, svo sem bætt lýðheilsa og hagkvæmari rekstur. Enn fremur segir í blaðinu að íþróttir og stuðningur við þær eigi ekki að flokkast sem kostnaður, heldur sem fjárfesting, meðal annars til þess að styðja tengsl íbúa við heimabyggð. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Chris og Britney í hár saman Fjárfestingar geta fjölgað iðkendum Eftirsótt raðhús í Fossvogi komið á sölu Þurfa að finna svör við Frakkanum Vínbúðinni á Fáskrúðsfirði lokað Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Staðreyndir um stöðuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu Skjálftinn fannst víða Svæðið á inni fyrir öðrum stórum skjálfta „Tilbúinn að taka 100% áhættu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Markaðsvirði Oculis hrynur Tveir skólar sameinast í haust Skýrt umboð til breytinga „Það eru ansi margar spurningar sem vakna“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Chris og Britney í hár saman Fjárfestingar geta fjölgað iðkendum Eftirsótt raðhús í Fossvogi komið á sölu Þurfa að finna svör við Frakkanum Vínbúðinni á Fáskrúðsfirði lokað Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Staðreyndir um stöðuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Gervigreindin eyðileggur fyrir lestri Njálu Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun „Þarna stóð ég og gat ekki annað“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Markaðsvirði Oculis hrynur Tveir skólar sameinast í haust Skýrt umboð til breytinga „Það eru ansi margar spurningar sem vakna“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað

Share this article