Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Miðar vel en vinna áfram að dýpkun næstu daga

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 21 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Miðar vel en vinna áfram að dýpkun næstu daga Andri Yrkill Valsson Búast má við að dýpkun Landeyjahafnar taki nokkra daga til viðbótar. Hún hefur verið lokuð í næstum þrjá mánuði vegna sandburðar. Vinna hófst af krafti í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni gekk vel að dýpka hafnarmynnið í morgun og er útlitið gott næstu daga. Herjólfur og Baldur sigla báðir til og frá Þorlákshöfn næstu daga. Herjólfur hefur síðustu vikur þurft að sigla til og frá Þorlákshöfn. RÚV / Magnús Alti Magnússon Fyrir 49 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Sjálf­stæð­is­flokk­ur orðinn þriðji stærst­ur í gamla víginu Samfylkingin mælist stærst í fjórum kjördæmum af sex í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. Sjálfstæðisflokkurinn mælist aðeins þriðji stærstur í Suðvesturkjördæmi þar sem hann hefur löngum trónað á toppnum. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Skák Óvænt úrslit á fyrsta degi Ís­lands­móts­ins í skák Óvænt úrslit urðu á fyrsta keppnisdegi Íslandsmótsins í skák sem hófst í Garðabæ í gær. Stigahæstu menn mótsins, Vignir Vatnar og Hannes Stefánssynir, hófu mótið á sigri í sínum viðureignum. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndagagnrýni Sound of Fall­ing: Draug­ar for­tíð­ar, nú­tíð­ar og fram­tíð­ar Kvikmyndin Sound of Falling á allt það lof skilið sem hún hefur fengið á erlendum kvikmyndahátíðum að mati Kolbeins Rastrick, gagnrýnanda Lestarinnar á Rás 1. Verkið sé einstakt og vel til þess fallið að rýna í lengi á eftir. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál „Þetta er óþægi­leg staða“ Að mati Steinunnar Þórðardóttur, formanns Læknafélags Íslands, er mjög alvarlegt ef gripið er til þess ráðs að reka fólk sem starfar í beinni sjúklingaþjónustu. Stöðugildum á Landspítalanum verður fækkað vegna rekstrarhalla. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur „Stefn­ir í metár hjá okkur eftir nokkur mögur sumur“ Formaður Strandveiðisjómanna vonast eftir metári þrátt fyrir að fyrsta úthlutun á kvóta frá innviðaráðuneytinu sé lægri en árið áður. Hann biðlar til smábátasjómanna að bíða rólegir eftir frekari úthlutun. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Um­fangs­meiri við­brögð nauð­syn­leg á Krist­nesi og brýnt að taka ákvörð­un Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar leggst gegn því að starfsemi Kristnesspítala verði lögð af en ákveða þurfi framtíðina sem fyrst. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Við­bú­in gróð­ur­eld­um á höf­uð­borg­ar­svæð­inu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er viðbúið gróðureldum vegna þurrka. Nokkrir minni háttar gróðureldar kviknuðu í gær. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Þurrt og bjart aust­an­til Nokkuð hvasst verður á landinu með stöku éljum í dag. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist „Ég hef alltaf verið smá smeyk­ur við að syngja sjálf­ur“ Ymur nefnist ný plata Friðriks Margrétar-Guðmundssonar. Platan hefur verið í næstum áratug í smíðum. Friðrik spilar tónlistina og syngur allt sjálfur. Eitt lagið á plötunni er sungið inn í gegnum hljóðnema á iPod-heyrnartólum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Starm­er segir að banna megi sam­kom­ur í sumum til­fell­um Forsætisráðherra Bretlands lítur svo á að banna megi samkomur hliðhollar Palestínu þar sem hvatt er til uppreisnar um allan heim. Hann er gagnrýndur fyrir að hafa ekki gert nóg til að vernda samfélag gyðinga. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Ég lifði þetta af“ Kona sem leiddist út í vændi og varð þolandi mansals vill að talað sé um konur í þeirri stöðu af virðingu, að fólk hætti að nota um þær gildishlaðin orð og átti sig á að þarna eru konur í neyð. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Mótorsport Í dag: Sindrator­fær­an í beinni frá Hellu Fyrsta torfæra sumarsins, Sindratorfæran, fer fram á Hellu í dag. 31 keppandi er skráður til leiks og búist við spennandi keppni. Sýnt verður beint frá torfærunni á RÚV 2 og hefst útsending klukkan 10:00. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Öku­manns sem reyndi að stinga af bíður kæra vegna fjölda um­ferð­ar­laga­brota Markús Þ. Þórhallsson Ölvaður ökumaður sem reyndi að stinga lögregluna af í gærkvöld eða í nótt má búast við kæru vegna fjölmargra umferðarlagabrota. Lögregla að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni. RÚV / Vignir Már Eiðsson Maðurinn var handtekinn líkt og tveir aðrir sem höfðu uppi ógnandi tilburði við meðborgara sína í miðborginni. Að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var ástand þeirra svo slæmt að beita þurfti þá lögreglutökum uns þeir voru komnir í fangaklefa. Alls sjö gistu fangaklefa í morgun. Eitt ungmenni var flutt á lögreglustöð og sótt þangað af forráðamönnum eftir slagsmál í miðborginni. Auk þessa hafði lögregla afskipti af ökumönnum í ýmsu ástandi og sektaði nokkra sem óku talsvert yfir hámarkshraða. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Ný þota Trumps — gjöf frá Katar — verður senn til­bú­in Markús Þ. Þórhallsson Boeing 747 risaþotan sem stjórnvöld í Katar gáfu Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir tæpu ári hefur staðist tilraunaflug og verður tilbúin til notkunar í sumar. Núverandi þota Bandaríkjaforseta. EPA / MICHAEL BUHOLZER Bandaríski flugherinn greinir frá og segir verið að mála hana í nýjum opinberum litum forsetaembættisins, rauðum, hvítum og bláum. Þegar greint var frá gjöfinni, sem er hundraða milljóna dala virði, var bent á að þingið þyrfti að samþykkja allar gjafir frá erlendum ríkjum. Þotan er sögð innréttuð eins og höll og það að erlent ríki láti hana í té hefur kveikt siðferðilegar og lagalegar spurningar ásamt efasemdum um að öryggissjónarmið hafi verið látin ráða för þegar gjöfin var þegin. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Gul­mál­uð reið­hjól eiga að vekja öku­menn til vit­und­ar um öryggi gang­andi og hjólandi veg­far­enda Vegfarendur á höfuðborgarsvæðinu hafa án efa komið auga á gulmáluð reiðhjól víðs vegar, ekki síst við fjölfarnar götur og gatnamót. Þau eru hluti vitundarvakningar fyrir ökumenn um að gæta varkárni sem Reiðhjólabændur og fleiri standa að. 2. maí 2026 kl. 5:00ERLENDAR FRÉTTIR Ítalía Fornir Fíatar öðlast nýtt líf með upp­gerð og raf­magns­vél Ítalskt bílaverkstæði býður áhugasömum kaupendum áratugagamla, klassíska Fíat-bíla sem hafa verið gerðir upp og þeim breytt í rafbíla. Eigandi verkstæðisins segist með þessu vilja færa bílana inn í 21. öldina. 2. maí 2026 kl. 4:20ERLENDAR FRÉTTIR Kanada Að­skiln­að­ar­sinn­ar í Al­berta ætla að knýja fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Aðskilnaðarsinnar í kanadíska fylkinu Alberta segjast hafa safnað nægilega mörgum undirskriftum til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði. Minnihluti íbúa styður sjálfstæði en greinendur telja stjórnmálalandslagið geta breyst. 2. maí 2026 kl. 3:15ERLENDAR FRÉTTIR Líbanon Minnst 13 drepn­ir í loft­árás­um Ísra­els­hers í gær Heilbrigðisráðuneyti Líbanons segir að loftárásir Ísraelshers hafi orðið 13 að aldurtila í gær auk þess sem tugir særðust. Konur og börn eru meðal þeirra sem drepin voru. Ísraelsher gerði loftárás á bæ eftir að hafa skipað íbúum að forða sér. 2. maí 2026 kl. 2:31ERLENDAR FRÉTTIR Serbía Lög­menn Mladić segja hann við dauð­ans dyr og krefj­ast lausn­ar hans úr fang­elsi Lögmenn serbneska stríðsglæpamannsins Ratko Mladić hafa farið fram á að hann verði látinn laus úr fangelsi enda sé hann við dauðans dyr. Hann hafi fengið slag og geti lítt tjáð sig. Samtök eftirlifenda voðaverka hans eru andvíg frelsun hans. 2. maí 2026 kl. 1:30ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Áfrýj­un­ar­dóm­stóll bannar tíma­bund­ið að senda megi þung­un­ar­lyf með pósti Bandarískur áfrýjunardómstóll úrskurðaði í gær að óheimilt yrði tímabundið að senda mikið notað þungunarrofslyf með pósti eða afhenda það í lyfjaverslunum. Konur sem æskja þungunarrofs þurfi að nálgast lyfið á heilbrigðisstofnunum. 2. maí 2026 kl. 0:19ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump segir stríðs­rekstr­in­um gegn Íran lokið Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt forsetum beggja þingdeilda að stríðsrekstrinum gegn Íran sé lokið. Honum hafi í raun lokið 7. apríl. Forsetinn kveðst hins vegar ekki geta fallist á tilboð Írana um áframhaldandi friðarviðræður. 1. maí 2026 kl. 23:29ERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Um fimm þúsund her­menn kall­að­ir brott á næst­unni Stríðsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur boðað að fækkað verði um fimm þúsund hermenn með viðveru í Þýskalandi á næstu mánuðum. Forseti Bandaríkjanna hótaði í vikunni að kalla hermenn þaðan eftir deilur við kanslarann vegna Íransstríðsins. 1. maí 2026 kl. 22:43ERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Nær öllum báts­verj­um sleppt — 31 þurfti lækn­is­að­stoð­ar við Ísraelsk stjórnvöld hafa sleppt flestum þeirra sem handteknir voru um borð í bátum Sumud-flotans. Tveir eru enn í haldi og um 30 þörfnuðust læknisaðstoðar á Grikklandi. Skipuleggjendur segja fólkið hafa verið beitt harðræði í ísraelskum herskipum. 1. maí 2026 kl. 21:47ÍÞRÓTTIR Körfubolti Njarð­vík sigr­aði Grinda­vík í fjórða leik ein­víg­is­ins Guðmundur Atli Hlynsson Njarðvík hafði betur gegn Grindavík í undanúrslitum Bónusdeildar kvenna í körfubolta í kvöld, 68-72. Brittany Dinkins í liði Njarðvíkur. RÚV / Mummi Lú Leikið var í HS-Orkuhöllinni í Grindavík. Njarðvík leiddi í lok fyrsta leikhluta en í hálfleik var Grindavík komin með forystuna. Grindvíkingar héldu forystunni fram að fjórða leikhluta og náðu 11 stiga forskoti. Þá gáfu Njarðvíkingar í og skoruðu 14 stig í röð og sigruðu leikinn. Var þetta fjórði leikur Njarðvíkur og Grindavíkur í einvíginu. Staðan er nú 2-2. Því er ljóst að oddaleikur verður spilaður á þriðjudag. 1. maí 2026 kl. 21:22ERLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Gervi­greind­in fær ekki boð á Ósk­ar­inn Bandaríska Kvikmyndaakademían kynnti í dag fjölda breytinga á reglum Óskarsverðlaunahátíðarinnar. Þær ná meðal annars til gervigreindar og flokks alþjóðlegra kvikmynda. 1. maí 2026 kl. 20:13INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Upp­lifa áhuga­leysi stjórn­valda á Gríms­ey Til stendur að fækka ferðum Grímseyjarferjunnar Sæfara frá og með haustinu. Íbúar segjast upplifa áhugaleysi stjórnvalda á byggð í

Share this article