EX60 er fyrsti rafknúni bíll Volvo sem er hannaður, þróaður og framleiddur í Svíþjóð, og leggur fyrirtækið áherslu á að hann undirstriki langtímaskuldbindingu Volvo við heimaland sitt sem miðstöð fyrir þróun og framleiðslu lúxusrafbíla. Volvo hefur átt erfið misseri að undanförnu. Bandarísk yfirvöld hafa hækkað tolla á bíla sem framleiddir eru í Kína, og kínverska Geely-samsteypan keypti Volvo árið 2010 af Ford og á nú 78% hlutafjár í Volvo Cars. Þetta eignarhald, sem áður var lykill að endurreisn Volvo eftir fjármálahrunið árið 2008, hefur á síðustu misserum orðið byrði. Sala dróst saman um 7% árið 2025, hlutabréfaverð hefur heldur lækkað og fyrirtækið skar niður 3.000 störf á miðju síðasta ári. Pantanir umfram spár Eftirspurnin virðist styðja við bjartsýnina. EX60 var frumsýndur í janúar og fékk góðar viðtökur. Pantanir á nær öllum helstu Evrópumörkuðum, ekki síst Svíþjóð og Þýskalandi, hafa verið mun meiri en spár Volvo gerðu ráð fyrir. Því ákvað fyrirtækið að auka framleiðsluna á árinu 2026. Stefnt er að því að halda Torslanda-verksmiðjunni opinni einni viku lengur en venjulega í sumar — í fyrsta sinn í sögu hennar. Tæknilega ætti EX60 að standa vel að vígi gagnvart þýsku samkeppninni. Drægnin er allt að 810 kílómetrar samkvæmt WLTP-staðlinum, hleðsla úr 10% upp í 80% tekur 16 mínútur, og verðið er sambærilegt við XC60-tengiltvinnbílinn — söluhæsta bíl Volvo og næstsöluhæsta bílinn í sínum stærðarflokki í Evrópu. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér .