Það var stór dagur fyrir sænska bílaframleiðandann Volvo þegar fyrstu EX60-bílarnir runnu af framleiðslulínunni í Torslanda þann 22. apríl 2026. Þar með hófst formlega framleiðsla bíls sem forstjóri Volvo lýsir sem leikbreyti. Í fyrsta sinn er nýr fullrafmagnaður Volvo-bíll hannaður, þróaður og framleiddur í Svíþjóð. Með þessu tekur Volvo fyrsta skrefið í þá átt að færa framleiðslu raf- og tvinnbíla sinna frá Kína til Gautaborgar – að minnsta kosti að hluta. Volvo hóf framleiðslu EX30 í Zhangjiakou í Kína árið 2023 og í Ghent í Belgíu árið 2025, sem lið í þeirri stefnu að byggja bíla nær þeim mörkuðum sem þeir eru seldir á. Söluhæsti bíllinn er XC60 Sala Volvo á heimsvísu dróst saman um 7% á árinu 2025 og endaði árið í 710.042 bílum. Söluhæsta tegundin er XC60 en 230.655 bílar seldust og stendur bíllinn því undir um þriðjungi allrar sölu Volvo. Drægni og hleðsla í fremstu röð Drægni og hleðsluhraði ráða miklu um val rafbílakaupenda – og raunar einnig um það hvort kaupendur á annað borð kjósi rafbíl. Håkan Samuelsson, forstjóri Volvo, gekk raunar svo langt að segja í tilefni þess að fyrsti bíllinn kom af færibandinu að EX60 væri hreinlega betri bíll en bróðirinn XC60. Það var óskaplega létt yfir Håkan Samuelsson forstjóra Volvo í Torslanda þegar nýr EX60 kom af færibandinu. EX60 er boðinn með þremur rafhlöðustærðum: 83 kWh með allt að 620 km drægni, 95 kWh með allt að 660 km og 117 kWh með allt að 810 km, samkvæmt WLTP-staðli. Hleðsla úr 10% í 80% tekur um 16 mínútur á öflugustu hraðhleðslustöðvum, sem er með því besta sem býðst í þessum stærðarflokki. Nýr undirvagn EX60 er fyrsti bíllinn sem smíðaður er á nýrri SPA3-rafbílagrind Volvo. Rafhlöðurnar eru felldar beint inn í gólfgrind bílsins með svokallaðri cellto-body-lausn, sem að sögn Volvo lækkar þyngd, eykur drægni og gerir bílinn stífari. Samuelsson segir grunnhugmyndina að EX60 hafa kviknað af einfaldri spurningu: af hverju ekki að setja rafhlöðuna beint í grindina? Afturhluti Volvo EX60 er stílhreinn og straumlínulagaður með einkennandi LED-ljós. Í höfuðið á Hugin, hrafni Óðins Bíllinn er byggður á HuginCore, tölvu- og hugbúnaðarkerfinu sem stjórnar EX60. Nafnið er sótt í norræna goðafræði. Huginn er annar hrafna Óðins, sá sem stendur fyrir hugsun. Kerfið nær yfir rafkerfi bílsins, miðlæga tölvu, svæðisstýringar og hugbúnaðinn sem keyrir öll þessi kerfi. Í eldri bílum var ein tölva fyrir mælaborðið, önnur fyrir akstursaðstoð, þriðja fyrir öryggiskerfi o.s.frv. og því tugir aðskildra tölva sem töluðu saman. Nýja kerfið sameinar þetta í eina miðlæga tölvu. Miðjuskjárinn er 11,2 tommur, Google er innbyggt og Gemini-aðstoðarmaðurinn skilur náttúrulegt tal án sérstakra skipana. EX60 er fyrsti Volvo-bíllinn með Apple Music innbyggt og stuðning við þrívíddarhljóðkerfið Dolby Atmos. Innrétting Volvo EX60 einkennist af hreinni hönnun, stórum miðjuskjá og nýja hugbúnaðarkerfinu sem heitir í höfuðið á öðrum af hröfnum Óðins. Nánar er fjallað um málið í Bílar , sérblaði Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta lesið umfjöllunina í heild hér .