Volvo EX60 er nýr og alrafmagnaður jeppi í stærsta rafbílaflokknum, sem var kynntur á heimsvísu í síðustu viku. EX60 kemst allt að 810 kílómetra á einni hleðslu í fjórhjóladrifinni útfærslu. Það gerir hann ekki aðeins að rafbílnum með lengstu drægni sem Volvo Cars hefur smíðað til þessa, heldur stenst hann einnig samanburð við nýjustu keppinauta í þessum stærðarflokki. Þá er hleðsluhraðinn áhugaverður, en hægt er að bæta við allt að 340 km drægni á aðeins tíu mínútum við 400 kW hraðhleðslu. EX60 er byggður á SPA3, nýjum rafbílagrunni Volvo Cars, og knúinn af HuginCore, kjarnakerfi fyrirtækisins. Nánar er fjallað um bílinn í Bílablaði Viðskiptablaðsins . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .