Innlent | Morgunblaðið | 4.5.2026 | 10:00 Skipakomum fjölgar en skaðinn er skeður Þorpið Bakkagerði stendur við Borgarfjörð eystri og má hér í baksýn sjá Dyrfjöllin tignarlegu. mbl.is/Skúli Halldórsson Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Komum skemmtiferðaskipa til Borgarfjarðar eystri fjölgar að nýju í sumar eftir að algjört hrun varð í komum þeirra í fyrrasumar. Árið 2025 voru lögð á 2.500 króna innviðagjöld á farþega skemmtiferðaskipa auk þess sem tollfrelsi var afnumið. Hafði þetta þau áhrif að aðeins eitt skemmtiferðaskip kom til hafnar í Borgarfirði eystri það sumar. Áður höfðu komurnar verið allt að 28. Skipakomum fjölgar nú í sumar þó að fyrri hæðum verði ekki náð, en gert er ráð fyrir 14 komum þetta árið. Eyþór Stefánsson, formaður heimastjórnar á Borgarfirði, segir það hafa verið lyftistöng fyrir bæinn að fá skipin í höfn á sínum tíma. „Þetta er ungur iðnaður hjá okkur og við þurftum að læra að þjónusta þetta fólk. Heimamenn voru farnir að skipuleggja dagskrá og bjóða upp á afþreyingu og svo kemur þessi afturför, þetta er ekki til þess gert að menn fari að treysta á þetta til framtíðar.“ Telur Eyþór ákvörðunina um að leggja gjöldin á og afnema tollfrelsi hafa verið tekna án samráðs við minni bæjarpláss úti á landi sem fengu til sín skemmtiferðaskip. „Við í Múlaþingi höfðum ítrekað sagt þingmönnum okkar og stjórnvöldum í heil tvö ár að þetta yrði afleiðingin. En það var ekki hlustað á okkur fyrr en það sem við sögðum raungerðist. Menn geta ekki borið fyrir sig fáfræðina heldur er þetta bara áhugaleysi fyrir því sem við landsbyggðarlúðarnir erum að segja,“ segir Eyþór. Hann kveður það sína tilfinningu að stjórnmálamenn taki ákvarðanir sínar með hagsmuni höfuðborgarsvæðisins og nágrennis í huga. „Á einhverjum tímapunkti verða menn að hugsa hvort þetta hafi áhrif á alla hina, sem eru á kaldari svæðum og berjast í bökkum.“ Ánægjulegt sé að gjaldið hafi verið lækkað og tollfrelsið framlengt. Það er þó ári of seint að mati Eyþórs. „Rekstraraðilar skipanna sýndu í verki að þeir tækju ekki þátt í þessu kjaftæði. Okkar sveitarstjóri er núna á fullt af ráðstefnum til að tala við þessa aðila, segja þeim að við búum ekki í bananalýðveldi og þeir geti treyst á festu í regluverkinu. Þetta er ekki komið í lag þó að þessu hafi verið breytt, það þarf að vinna þetta til baka og skaðinn er skeður.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sólveig Anna: „Innihaldsrýr pólitík“ Tveir FH-ingar enduðu á spítala Vísa starfsmönnum rússneska sendiráðsins úr landi 15 milljón króna styrkur Landsliðskonan samdi í Rúmeníu Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Frelsið minnkar og ríkið stækkar með ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Laufey opnar sig í löngu viðtali við BBC Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Inga Dögg lést í kajakslysinu Umræðan á Íslandi hreyfir við Norðmönnum Mest lesið Í gær Í vikunni Húsnæðislán á 47 sekúndum Fjárfestar keyptu margar íbúðir í öðrum áfanga Heklureits Blikur á lofti í byggingariðnaði Skólayfirvöld axli ábyrgð Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Grindvíkingar ekki hafðir með í ráðum Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis „Ég veit hvar þú átt heima“ Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Hvolfdist í hylinn: „Þetta var ekki notalegt“ Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Inga Dögg lést í kajakslysinu Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Sólveig Anna: „Innihaldsrýr pólitík“ Tveir FH-ingar enduðu á spítala Vísa starfsmönnum rússneska sendiráðsins úr landi 15 milljón króna styrkur Landsliðskonan samdi í Rúmeníu Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Frelsið minnkar og ríkið stækkar með ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Hætta á sinueldum og éljum í vikunni Gera bátana klára á strandveiðar Þrír látnir um borð í skipi sem fer til Íslands Mest lesið Í gær Í vikunni Húsnæðislán á 47 sekúndum Fjárfestar keyptu margar íbúðir í öðrum áfanga Heklureits Blikur á lofti í byggingariðnaði Skólayfirvöld axli ábyrgð Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Grindvíkingar ekki hafðir með í ráðum Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis „Ég veit hvar þú átt heima“ Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Hvolfdist í hylinn: „Þetta var ekki notalegt“ Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Inga Dögg lést í kajakslysinu Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“