Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Öruggur sigur Þróttar á Fram

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 22 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Ör­ugg­ur sigur Þrótt­ar á Fram Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Þróttur vann Fram í kvöld 3-0. RÚV / Mummi Lú Þróttur vann öruggan 3-0 sigur á Fram í eina leik kvöldsins í Bestu deild kvenna í fótbolta. Sigríður Th. Guðmundsdóttir, Jelena Tinna Kujundzic og Þórdís Nanna Ágústsdóttir skoruðu mörk Þróttar í leiknum. Þróttur hefur nú sex stig í Bestu deildinni, rétt eins og Breiðablik og ÍBV. Þar sem þetta var fyrsti leikur 3. umferðar eiga öll önnur lið en Þróttur og Fram leik til góða. Fyrir 7 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Mjög kær­kom­ið að Herj­ólf­ur hafi komist til Land­eyja­hafn­ar Sigling Herjólfs til Landeyjahafnar í kvöld gekk vel, að sögn framkvæmdastjóra Herjólfs, og stefnt er að siglingum næstu daga. Ferðum verður bætt við eftir því sem dýpkun hafnarinnar vindur fram. Fyrir 15 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Odd­vita­um­ræð­ur á Ak­ur­eyri Oddvitar framboða á Akureyri mættust í oddvitaumræðunum á RÚV fyrir sveitarstjórnarkosningar. Átta listar eru í framboði. Fyrir 15 mínútumÍÞRÓTTIR Körfubolti Njarð­vík enn og aftur í úrslit Njarðvík komst í kvöld í úrslit Íslandsmóts kvenna í körfubolta þriðja árið í röð. Njarðvík vann Grindavík í oddaleik í undanúrslitum. Fyrir 29 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Ars­en­al í úrslit Meist­ara­deild­ar­inn­ar í fyrsta sinn í 20 ár Arsenal sló í kvöld út spænska liðið Atlético Madríd í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Arsenal mun því leika til úrslita í Meistaradeildinni í fyrsta sinn í 20 ár. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál „En það er auð­vit­að engin ein lausn við fíkni­efna­vand­an­um“ Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að efla forvarnir og víðtæka nálgun svo hægt sé að draga úr fíkniefnavandanum. Engin ein lausn sé þó til staðar. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Andlát Mynd­list­ar­kon­an Rúna látin Sigrún Guðjónsdóttir myndlistarkona, sem alltaf var kölluð Rúna, er látin 99 ára að aldri. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Á fjórða þúsund í fram­boði á 182 listum Frambjóðendur til sveitarstjórnarkosninga í Reykjavík dreifast nokkuð jafnt eftir búsetu en flestir búa í Austurborginni. 53% frambjóðenda á landsvísu eru karlmenn og 47% konur. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hafa heim­ild­ir til að banna skip­inu að koma til Ís­lands Sóttvarnalæknir segir að skemmtiferðaskipinu Hondius verði ekki hleypt að landi hér nema að uppfylltum ströngum skilyrðum. Þrír farþegar um borð hafa látist um borð vegna hantaveiru. Íslensk stjórnvöld hafa valdheimildir til að stöðva komu skipsins. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lýðheilsa Torgið í beinni: Þyngd­ar­stjórn­un til umræðu Þyngdarstjórnun er til umræðu í umræðuþættinum Torginu í kvöld. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Handbolti Vals­kon­ur einum sigri frá Ís­lands­meist­ara­titli Valur þarf nú aðeins einn sigur til viðbótar í úrslitum Íslandsmóts kvenna í handbolta til að verða meistari. Það yrði þá fjórða árið í röð sem Valur yrði meistari. Valur vann ÍBV í Vestmannaeyjum í öðrum leik liðanna í kvöld. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Netöryggi Gögnum mögu­lega stolið af nem­end­um Há­skóla Ís­lands Öryggisatvik sem kom upp hjá þjónustuaðila Canvas-námsumsjónarkerfisins olli truflunum á virkni kerfisins, í tilkynningu segir að mögulegt sé að óviðkomandi aðilar hafi fengið aðgang að ákveðnum notendaupplýsingum. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rúmenía Sam­þykktu að víkja for­sæt­is­ráð­herra úr emb­ætti Flokkur sem yfirgaf nýverið ríkisstjórnarsamstarf í Rúmeníu studdi tillögu um að víkja forsætisráðherra landsins úr embætti. Hún var samþykkt með afgerandi meirihluta í dag. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Að­gerð­um fækk­aði um 640 sam­hliða auk­inni notkun þyngd­ar­stjórn­un­ar­lyfja Kviðarholsskurðlæknir segir vinsældir þyngdarstjórnunarlyfja hafa leitt til fækkunar efnaskiptaaðgerða. Þær voru rúmlega þúsund árið 2021 en um 400 í fyrra. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Tveir flutt­ir á bráða­mót­töku eftir árekst­ur á Kringlu­mýr­ar­braut Árekstur varð á Kringlumýrarbraut síðdegis. Ekki liggur fyrir hvort fólk hafi slasast en tveir voru fluttir á bráðamóttöku Landspítalans til skoðunar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Trúir ekki að áhafn­ar­skort­ur sé til kominn vegna óform­legra verk­falls­að­gerða Síðdegisflugi Icelandair var aflýst með stuttum fyrirvara þegar ekki tókst að manna áhöfn. Forstjóri Icelandair kveðst ekki trúa því að flugmenn séu í óformlegum verkfallsaðgerðum. Fyrsti fundur þeirra hjá ríkissáttasemjara var í dag. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur „Saur, óétið fóður, þvag – þetta fer allt út í vatnið“ Mengun frá fiskeldisstöðvum við strendur Noregs jafnast á við óhreinsað skólp frá þjóð á stærð við Ástralíu, samkvæmt nýrri skýrslu. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Gaurar og gærur Gaurar og Gærur úr Með allt á hreinu ruddust inn í Vikuna með Gísla Marteini. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Segir Íran ekki eiga mögu­leika gagn­vart Banda­ríkj­un­um Bandaríkjaforseti segir Íran ekki eiga möguleika gagnvart Bandaríkjunum. Árásir Írana á Sameinuðu arabísku furstadæmin halda áfram. Ekkert lát er á átökum milli Ísraela og Hezbollah-samtakanna í suðurhluta Líbanon. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Ísland og ESB: Und­an­þág­urn­ar snúist um yf­ir­ráð yfir kvóta­út­hlut­un­um Prófessor í Háskólanum í Reykjavík segir að tónninn hjá Evrópusambandinu í garð Íslands hafi breyst nokkuð síðastliðinn áratug. Hann segir að vilyrði fyrir undanþágum Íslands frá sjávarútvegslöggjöf sambandsins séu ákveðin tíðindi. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ofbeldi Stund­aði vændi í hálft ár – „Þetta var skelfi­leg­ur tími“ Kona sem stundaði vændi í um hálft ár skömmu eftir aldamót segist ekki hafa áttað sig fyllilega á áhrifum þess á líf sitt og líðan fyrr en eftir að hún fór að vinna úr öðrum áföllum. Hún segir mikilvægt að hlustað sé á fólk sem hefur stundað vændi. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Forseti Íslands Vel fór á með Höllu og Leó páfa Forseti Íslands heimsótti Vatíkanið. Þar hitti hún Leó XIV páfa og Pietro Parolin kardínála. Á Facebook-síðu sinni segir hún stundina hafa verið einstaka og ógleymanlega. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Kaffi­tár lokar síð­ustu kaffi­hús­un­um Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Kaffitár Kaffitár lokar síðustu kaffihúsum sínum í Kringlunni og í Háskólanum í Reykjavík í lok maí. Fyrirtækið greinir frá þessu á Facebook og segir þetta gert með miklum trega. Það þakkar viðskiptavinum, starfsfólki og samstarfsaðilum fyrir 31 ár af gleði og ilmandi kaffi. Kaffitár rak a.m.k. sjö kaffihús þegar mest lét. „En þrátt fyrir breytta tíma er margt spennandi framundan hjá okkur! Við munum halda áfram að efla „pop-up” kaffibarinn á viðburðum, fyrirtækjaþjónustuna okkar og kaffiframboð í verslunum. Við höldum áfram að framleiða gæðakaffið okkar í Kaffibrennslu Kaffitárs og þróa spennandi nýjar tegundir,“ segir í færslunni. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Vísar full­yrð­ing­um um gull­húð­un al­far­ið til föð­ur­hús­anna Atvinnuvegaráðherra segir fullyrðingar formanns Samtaka atvinnulífsins um að breytingar á lögum um ársreikninga séu gullhúðun rangar. Samtök atvinnulífsins hafa gagnrýnt bæði framsetningu og forsendur frumvarpsins. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Popptónlist Djúp­fals­að efni frá Jónfrí Tónlistarmaðurinn Jónfrí sendi frá sér nýtt lag á dögunum og sagði hlustendum Popplands frá. Lagið Djúpfalsað efni er teknóskotið indí um stóra tölvuheilann og súld á Skólavörðuholti. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálf­stæð­is­flokk­ur bætir við sig en Sam­fylk­ing­in stækk­ar mest Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærsti flokkurinn í Kópavogi og myndi bæta við sig fylgi og einum bæjarfulltrúa frá síðustu kosningum. Samfylkingin myndi nær þrefalda fylgi sitt. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Lárus leitar til yf­ir­deild­ar MDE Brynjólfur Þór Guðmundsson Lárus Welding, athafnamaður og fyrrverandi forstjóri Glitnis, vill að máli sínu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu verði vísað til yfirdeildar dómstólsins. Mannréttindadómstóllinn sýknaði íslenska ríkið í dag af kröfum Lárusar. Hann taldi að brotið hefði verið á rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar þegar sérfróður meðdómandi var skipaður í Stím-málinu. Fjórir af sjö dómurum höfnuðu því og sýknuðu íslenska ríkið. Þrír dómarar voru því ósammála og skiluðu séráliti. Lárus hefur falið lögmanni sínum að óska eftir því að máli hans verði vísað til yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu. Lárus Welding. RÚV Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntagagnrýni Þegar heim­ur­inn fórst: Hefði getað verið flott hug­mynd en tókst ekki nægi­lega vel Gagnrýnendum Kiljunnar þykir bókin Þegar heimurinn fórst eftir Stefán Mána líða fyrir skort á persónusköpun. Hugmyndin sé góð en hefði þurft meiri vinnu. Kolbrún telur bókina þó líklega höfða betur til ungs fólks en sín. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Vet­ur­inn með Gísla Mart­eini Síðasti þáttur Vikunnar með Gísla Marteini var síðasti þáttur vetrarins og þá við hæfi að birta bestu brotin. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Stefna á að sigla Herj­ólfi til Land­eyja­hafn­ar síð­deg­is Ef allt gengur að óskum siglir Herjólfur til Landeyjahafnar síðdegis. Höfnin hefur verið lokuð mestallt árið vegna sandburðar. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir von um betri tíð fyrir íbúa Vestmannaeyja. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Fjár­mála­ráð­herra sáttur við ol­íu­fé­lög­in Lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti tók gildi á föstudag. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur lækkunina hafa skilað sér til neytenda. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ven­esú­elska konan stefn­ir Ræsti­tækni og vill miska­bæt­ur Venesúelsk kona á þrítugsaldri stefnir framkvæmdastjóra og eiganda ræstingafyrirtækis sem hún starfaði hjá. Saga konunnar vakti mikla athygli í fréttum í fyrra. Fyr

Share this article