Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tíu marka leikur í Úlfarsárdal og loksins vann Þróttur

Read Full Article →

Fimmtánda umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta hófst í kvöld með þremur leikjum: Fram 4-6 FH Breiðablik 1-0 Grindavík/Njarðvík Þróttur 3-2 Valur Sjö mörk af tíu komu í seinni hálfleik Í Úlfarsárdal voru tíu mörk skoruð þegar Fram fékk topplið FH í heimsókn. Helena Maree Errington og Ída Marín Hermannsdóttir komu Hafnfirðingum tveimur mörkum yfir en Alda Ólafsdóttir minnkaði muninn skömmu fyrir hálfleik þar sem staðan var því 1-2. Næstu þrjú mörk voru gestanna, Hrönn Haraldsdóttir, Ída Marín og Ragnheiður Th. Skúladóttir skoruðu þau. Framarar svöruðu með tveimur mörkum frá Söru Svanhildi Jóhannsdóttur og Öldu Ólafsdóttur. Nia Raisa Christopher skoraði sjötta mark FH-inga á 85. mínútu og lokamark leiksins var Framara, það gerði Taylor Marie Hamlett. Lokatölur 4-6 í ótrúlegum leik. Töluvert færri mörk á Kópavogsvelli Blikar eru með jafnmörg stig og FH en ögn lakari markatölu. Þær bættu hana í raun lítið í kvöld því þær unnu Grindavík/Njarðvík með minnsta mun, 1-0. Katelyn Duong skoraði markið á níundu mínútu. Fyrsti sigurinn í 75 daga Þrátt fyrir að Þróttarar séu komnar í bikarúrslit hefur lítið sem ekkert gengið hjá þeim í deildinni og þær voru í áttunda sæti fyrir umferðina, einunigs tveimur stigum fyrir ofan Val í fallsæti. Þessi lið mættust einmitt á Þróttarvelli í kvöld þar sem heimakonur leiddu 3-0 í hálfleik. Unnur Dóra Bergsdóttir, Kayla Marie Rollins og Björg Gunnlaugsdóttir skoruðu mörkin. Kayla Marie skoraði sjálfsmark á 50. mínútu og Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir annað mark Vals sex mínútum síðar en nær komust gestirnir ekki og 3-2 fór. Þetta var fyrsti deildarsigur Þróttar síðan 29. maí en þá unnu þær einmitt Val á Hlíðarenda, 0-1. Staðan í deildinni .

Share this article