Bílar | Morgunblaðið | 8.5.2026 | 10:35 Hekla kveður Laugaveginn með sumarsýningu Nýr Audi A6 e-tron verður frumsýndur á sumarsýningunni. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Hekla kveður Laugaveginn með veglegri sumarsýningu á morgun, laugardaginn 9. maí, á milli kl. 12 og 16. Á sýningunni verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla aldurshópa, grillaðar pylsur og ís frá Valdísi og K100 verður í beinni. Sirkus Íslands, Veltibíllinn og Blaðrarinn skemmta börnunum og nostalgían mun svífa yfir vötnum með myndum frá starfi Heklu í gegnum árin í takt við tónlist að hætti Andreu Jóns. Hekla mun í sumar flytja höfuðstöðvar sínar í Þorraholt í Garðabæ og lýkur þá yfir 60 ára sögu Heklu á Laugavegi. Flutningurinn í Þorraholt markar kaflaskil í sögu Heklu, en þar mun fyrirtækið búa yfir einni fullkomnustu bílamiðstöð landsins, sniðinni að kröfum framtíðarinnar. Miðstöðin er að hluta til neðanjarðar með um 500 bílastæðum. „Það hefur verið okkur mikil ánægja að taka á móti viðskiptavinum okkar á Laugavegi í rúm 60 ár. Allt á sinn tíma og stað og í sumar munum við kveðja Laugaveginn og opna nýja bílamiðstöð í Þorraholti, Garðabæ þar sem aðstaðan verður með því besta sem völ er á.” segir í tilkynningu frá Heklu. Hekla mun í sumar flytja höfuðstöðvar sínar í Þorraholt í Garðabæ og lýkur þá yfir 60 ára sögu Heklu á Laugavegi. Ljósmynd/Aðsend Audi A6 e-tron frumsýndur auk spennandi kveðjutilboða Hekla fagnar þessum tímamótum með tilboðum á sínum vinsælustu rafbílum og frumsýna að auki glæsilegan og margverðlaunaðan Audi A6 e-tron: „Audi A6 sameinar stílhreina hönnun, háþróaða tækni og einstök þægindi. Bíllinn er hannaður fyrir þá sem vilja gæði án málamiðlana, hvort sem er í daglegu lífi eða á ferðalagi,“ segir í tilkynningunni. Drægni rafbílsins er allt að 712 km samkvæmt WLTP, hann er með Quattro-fjórhjóladrif og er bíllinn fáanlegur Avant eða Sportback. „Hekla býður viðskiptavini sína og fyrrum starfsfólk sérstaklega velkomið og hvetur vini og velunnara til þess að líta við á Laugaveginum laugardaginn 9. maí, njóta stemningarinnar og kveðja Laugaveginn.“ Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Askja frumsýnir nýjan Mercedes-Benz Kílómetragjald í Bretlandi harðlega gagnrýnt Fékk nýjan sérútbúinn Mercedes-Benz Toyota býður til frumsýningar á tveimur bílum Frumsýna nýja RAM 2500 á laugardag Toyota blæs til jeppasýningar á laugardag Kia besti rafbílaframleiðandinn að mati Top Gear Toyota sýnir nýjan rafmagnsbíl DHL á Íslandi rafvæðir 90% af sendibílaflotanum Nettur en þéttur og býsna glúrinn Kílómetragjald í Bretlandi harðlega gagnrýnt Fékk nýjan sérútbúinn Mercedes-Benz Toyota býður til frumsýningar á tveimur bílum Askja frumsýnir nýjan Mercedes-Benz DHL á Íslandi rafvæðir 90% af sendibílaflotanum Nettur en þéttur og býsna glúrinn Frumsýna nýja RAM 2500 á laugardag Toyota blæs til jeppasýningar á laugardag Kia besti rafbílaframleiðandinn að mati Top Gear Eins og fjölskyldubílar eiga að vera Kílómetragjald í Bretlandi harðlega gagnrýnt Askja frumsýnir nýjan Mercedes-Benz Fékk nýjan sérútbúinn Mercedes-Benz Toyota býður til frumsýningar á tveimur bílum DHL á Íslandi rafvæðir 90% af sendibílaflotanum Frumsýna nýja RAM 2500 á laugardag Nettur en þéttur og býsna glúrinn Eins og fjölskyldubílar eiga að vera Toyota blæs til jeppasýningar á laugardag Kia besti rafbílaframleiðandinn að mati Top Gear Mest lesið Í gær Í vikunni Askja frumsýnir nýjan Mercedes-Benz Kílómetragjald í Bretlandi harðlega gagnrýnt Fékk nýjan sérútbúinn Mercedes-Benz Toyota býður til frumsýningar á tveimur bílum Frumsýna nýja RAM 2500 á laugardag Toyota blæs til jeppasýningar á laugardag Kia besti rafbílaframleiðandinn að mati Top Gear Toyota sýnir nýjan rafmagnsbíl DHL á Íslandi rafvæðir 90% af sendibílaflotanum Nettur en þéttur og býsna glúrinn Kílómetragjald í Bretlandi harðlega gagnrýnt Fékk nýjan sérútbúinn Mercedes-Benz Toyota býður til frumsýningar á tveimur bílum Askja frumsýnir nýjan Mercedes-Benz DHL á Íslandi rafvæðir 90% af sendibílaflotanum Nettur en þéttur og býsna glúrinn Frumsýna nýja RAM 2500 á laugardag Toyota blæs til jeppasýningar á laugardag Kia besti rafbílaframleiðandinn að mati Top Gear Eins og fjölskyldubílar eiga að vera Kílómetragjald í Bretlandi harðlega gagnrýnt Askja frumsýnir nýjan Mercedes-Benz Fékk nýjan sérútbúinn Mercedes-Benz Toyota býður til frumsýningar á tveimur bílum DHL á Íslandi rafvæðir 90% af sendibílaflotanum Frumsýna nýja RAM 2500 á laugardag Nettur en þéttur og býsna glúrinn Eins og fjölskyldubílar eiga að vera Toyota blæs til jeppasýningar á laugardag Kia besti rafbílaframleiðandinn að mati Top Gear Loka