Hekla kveður Laugaveginn með frumsýningu á nýjum Audi A6 e-tron á morgun, laugardag. Hekla mun í sumar flytja höfuðstöðvar sínar í Þorraholt, Garðabæ og lýkur þá yfir 60 ára sögu Heklu á Laugavegi. Flutningur Heklu í Þorraholt markar kaflaskil í sögu fyrirtækisins en þar verður, samkvæmt tilkynningu, Hekla með eina fullkomnustu bílamiðstöð landsins. Miðstöðin er að hluta til neðanjarðar með um 500 bílastæðum og sameinast starfsemi Heklu undir einu þaki með bílaumboði Heklu, Hekla notaðir bílar, Stilling vara- og aukahlutaverslun og Carglas- framrúðuverkstæði. Sjá einnig Hekla að kaupa Bílson Hekla fagnar þessum tímamótum með tilboðum á vinsælum rafbílum og frumsýnir þar að auki nýjan margverðlaunaðan Audi A6 e-tron. Audi A6 sameinar stílhreina hönnun, háþróaða tækni og einstök þægindi og er sannkallaður lúxusbíll frá þýska bílaframleiðandanum í Ingolstadt. Bíllinn er fáanlegur í bæði Avant og Sportback útfærslum. Drægni rafbílsins er allt að 712 km samkvæmt WLTP staðli, og er hann búinn Quattro fjórhjóladrifi. Rafhlöðurnar í A6 skila bílnum 456 hestöflum og togið er 855 NM.