Ég prófaði Audi A6 Avant e-tron sem er hlaðbaksútgáfan af A6-línunni en Sportback er klassískur stallbakur. Bíllinn sem ég fékk er í dýrustu S-Line útfærslunni. Bíllinn er með sportlegar og stílhreinar línur og þetta er einn alflottasti hlaðbakur sem ég hef séð. Audi eru þekktir fyrir flotta hönnun á bílum sínum og það er ekkert að breytast hér með þessari nýju A6-línu. Tæknin allsráðandi í innanrýminu Grillið er voldugt og minnir útlitslega á Q6 e-tron sportjeppann. Framljósin eru sérlega fallega hönnuð. Ljósin spila stórt hlutverk í hönnun þessa bíls og að aftan er breið ljóslína sem nær alveg þvert yfir og í miðjunni er Audi-merkið, hringirnir frægu, sem eru einnig upplýstir. Innanrýmið er fallega hannað og vel hugað að öllu fyrir ökumann og farþega. Tæknin er allsráðandi í innanrýminu, þar sem 14,5 tommu snerti-upplýsinga- og afþreyingarskjár er í miðjunni ásamt 11,9 tommu stafrænum klasa, 10,9 tommu farþegaskjá að framan og nýjum gagnvirkum head-up skjá. Það fer vel um ökumann í innanrýminu. Fínt afl og drægni Aksturseiginleikarnir eru mjög góðir. Bíllinn er búinn Quattro-fjórhjóladrifinu frá Audi sem er eitt það besta sem völ er á. Aflið er mikið og gott. Rafhlaðan skilar bílnum 456 hestöflum og 855 Nm í togi. Bíllinn er 4,5 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið og hámarkshraðinn er 210 km/klst. Drægnin er 674 km samkvæmt WLTP-staðli. Það er fínasta drægni miðað við blandaðan akstur. Aksturinn er ljúfur og þægilegur og bíllinn er mjög lipur miðað við hvað hann er langur. Stýringin er góð og bíllinn steinliggur á veginum þótt ekið sé allgreitt í beygjum. Fjallað er um málið í sérblaðinu Bílar , sem fylgir Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér .