Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 13 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Síle Jarðskjálfti að stærðinni 5,8 Brynja Dögg Friðriksdóttir Biobio svæðið í Mið-Síle. Google map Jarðskjálfti að stærðinni 5,8 varð í Biobio-svæðinu í Mið-Chile í gærkvöld að staðartíma, samkvæmt norska ríkisútvarpinu NRK. Skjálftinn átti upptök sín á 23 kílómetra dýpi samkvæmt Evrópsku jarðskjálftamiðstöðinni (EMSC). Ekki hafa borist fréttir af manntjóni eða eyðileggingu á innviðum. Jarðskjálftar eru tíðir á Biobio-svæðinu. Árið 1960 fórust þar 2.000 manns í stærsta skráða jarðskjálfta sögunnar, sem mældist 9,5 að stærð. Fyrir 47 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað í fylgd fullorðins einstaklings Fullorðinn einstaklingur var handtekinn á skemmtistað í miðbænum í gærkvöld eða nótt en með honum voru þrjú ungmenni undir aldri, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Þýskaland og Kanada ætla að auka samstarf milli þjóðanna Brynja Dögg Friðriksdóttir Varakanslari Þýskalands og fjármálaráðherra Lars Klingbeil. EPA / CLEMENS BILAN Stjórnvöld í Kanada og Þýskalandi ætla að auka samstarf milli þjóðanna. Þetta tilkynnti varakanslari Þýskalands og fjármálaráðherra Lars Klingbeil eftir fund sinn með forsætisráðherra Kanada Mark Carney í Toronto í Kanada í gær. Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá. Klingbeil sagði að samstarfið verði á sviði gervigreindar, orkumála, mikilvægra hráefna og verkefna á sviði varnarmála. Varakanslarinn hefur einnig lagt til að Kanadamenn kaupi kafbáta af Þjóðverjum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Segir litlar líkur á að íbúar Tenerife smitist af hantaveiru Framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar kom til Tenerife í gær. Hann segir að spænsk yfirvöld hafi vandað til verka fyrir komu Holdiusar til Tenerife og íbúar eyjarinnar þurfi ekki að óttast það að smitast af hantaveirunni. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Malí 80 drepnir í árás jíhadista Brynja Dögg Friðriksdóttir Séð yfir Bamako, höfuðborg Malí. AP / Uncredited Að minnsta kosti 80 voru drepnir í árás jíhadista í Mið-Malí í gær. Jíhadistahópurinn JNIM tengist hryðjuverkasamtökunum al-Qaida og hefur með árásum sínum, sprengutilræðum og öðrum ódæðum gert líf íbúa nær óbærilegt víða um landið undanfarið. Þá voru minnst 30 drepnir í annarri árás á þorp í Mið-Malí á miðvikudaginn. Malí hefur glímt við versnandi öryggisástand í meira en áratug. Fjölmörgum svæðum í norðurhluta landsins er stjórnað af vígahópum, uppreisnarmönnum og glæpasamtökum sem hafa lengi barist um yfirráð á stórum svæðum landsins. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Brot á vopnahléi Rússa og Úkraínumanna Rússar og Úkraínumenn saka hvor annan um brot á þriggja daga vopnahléi sem enn er í gildi. Rússlandsforseti sagði í gær á hátíðarhöldunum í Moskvu að átökin væru að líða undir lok en gagnrýndi harðlega stuðning Vesturlanda við Úkraínu. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Funduðu um varnarmál og stöðuna í Mið-Austurlöndum Utanríkisráðherra Bandaríkjanna og forsætisráðherra og utanríkisráðherra Katar funduðu um varnarmál og samstarf landanna í dag. Katarar hafa reynt að miðla málum í stríðinu milli Írana og Bandaríkjamanna undanfarið. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Listaháskóli Íslands leggur leið sína í Stakkahlíð Viljayfirlýsing um tilfærslu allra starfsstöðva Listaháskóla Íslands í Stakkahlíð 1 var undirrituð í dag. Rektor skólans segir ný húsakynni bjóða upp á betra námsumhverfi. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Nær hundrað handtekin fyrir ólögleg mótmæli í París Nær hundrað voru handtekin og 46 eru í gæsluvarðhaldi fyrir ólögleg mótmæli í París í dag. Lögreglan hefur bannað mótmæli franska hægri-öfgahópsins C9M og gagn-mótmæli andfasista. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Vortónleikar Karlakórs Akureyrar Geysis Karlakór Akureyrar Geysir hélt sína árlegu vortónleika í Akureyrarkirkju í kvöld. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Grindavík byrjar úrslitaeinvígið á sigri Hans Steinar Bjarnason Grindavík vann nauman sigur á Tindastóli 85-80 í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta í kvöld. Grindavík náði mest 19 stiga forystu í fyrri hálfleik og var 15 stigum yfir í hálfleik, 49-34. Tindastóll vann þennan mun upp og komst yfir undir lok þriðja leikhluta en Grindvíkingar náðu aftur góðri forystu í upphafi lokaleikhlutans. Tindastóll náði að minnka muninn niður í þrjú stig þegar 19 sekúndur voru eftir en komst ekki nær. Ólafur Ólafsson fyrirliði Grindavíkur. Mummi Lú Grindavík hefur þar með náð 1-0 forystu í einvíginu. Vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari. Liðin mætast næst á Sauðárkróki á þriðjudaginn. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Almannavarnir Brúður og leikarar af holdi og blóði í umfangsmikilli flugslysaæfingu á Akureyri Allir viðbragðsaðilar á Akureyri og nærsveitum voru virkjaðir á efsta forgang í dag þegar Isavia stóð fyrir umfangsmikilli flugslysaæfingu. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Framsókn Rússa virðist hafa stöðvast og vorsókn mistekist algjörlega Dregið hefur úr sóknarþreki Rússa í innrásinni í Úkraínu, og óánægja með stríðið fer vaxandi meðal almennings í Rússlandi, segir hernaðarsagnfræðingur. Staða Úkraínumanna styrkist á sama tíma og hernaðargeta Rússa veikist. 9. maí 2026 kl. 20:01ERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Morð olli neyðarlokun á bráðamóttöku í Svíþjóð Maður á þrítugsaldri lést í Kristianstad í Svíþjóð í kvöld eftir að hljóta áverka eftir eggvopn. Maðurinn lenti í áttökum og var fluttur á bráðamóttöku sem var svo lokað vegna mikils uppnáms sem varð þar. 9. maí 2026 kl. 19:54INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Óttast að næturvinna geri rúmrusk Ístak hefur fengið tímabundna undanþágu til að reisa Fossvogsbrú á nóttunni. Það er gert til að trufla ekki flugumferð á daginn. Heilbrigðiseftirlitið hefur áhyggjur af hávaða sem geti raskað svefni. 9. maí 2026 kl. 19:54ÍÞRÓTTIR Fótbolti Glódís Perla tók við meistaraskildinum fyrir Bayern Hans Steinar Bjarnason Glódís Perla Viggósdóttir tók í dag við meistaraskildinum fyrir hönd Bayern München sem tryggði sér Þýskalandsmeistaratitilinn í fótbolta á dögunum. Skjöldurinn fór á loft eftir 2-0 sigur Bayern gegn Frankfurt í síðasta heimaleik meistaranna á tímabilinu. Skjöldurinn afhentur Glódísi Perlu. IMAGO / Ulrich Wagner Yfirburðir Bayern í deildinni eru töluverðir og í apríl var þegar ljóst að liðið yrði Þýskalandsmeistari. Glódís Perla er fyrirliði Bayern og því var skjöldurinn afhentur henni til lyftingar að leik loknum. Glódís Perla lyftir skildinum í dag. IMAGO / Ulrich Wagner 9. maí 2026 kl. 18:48ÍÞRÓTTIR Handbolti ÍBV kom í veg fyrir meistarafögnuð Valskvenna Hans Steinar Bjarnason ÍBV vann stórsigur á Val í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta í kvöld, 27-35. Valskonur voru 2-0 yfir í einvígi liðanna fyrir leikinn og hefðu með sigri tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Frá leik liðanna á Hlíðarenda í kvöld. RÚV / Mummi Lú Eyjakonur komu þó í veg fyrir það. Þær voru einu marki yfir í hálfleik, 14-15, en náðu 12 marka forystu í seinni hálfleik og gerðu út um leikinn og minnkuðu muninn í einvíginu í 2-1. Fjórði leikur liðanna verður í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn. 9. maí 2026 kl. 18:44INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Málið sýni að stjórnsýslan sé að fylgjast með Helga Þórðardóttir er sannfærð um að borgarstjóri hafi ekki haft neitt misjafnt í huga við notkun sína á innkaupakorti. Alexandra Briem segir eðlilegt að eftirlit sé haft með eyðslunni. 9. maí 2026 kl. 18:39ÍÞRÓTTIR Fótbolti Man City heldur Arsenal við efnið Hans Steinar Bjarnason Manchester City minnkaði forskot Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta niður í tvö stig með 3-0 sigri á Brentford í kvöld. Jeremy Doku, Erling Haaland og Omar Marmoush skoruðu mörkin. Arsenal er með 76 stig á toppi deldarinnar, tveimur stigum yfir Man City, þegar þremur umferðum er ólokið. Manchester City's Jeremy Doku, center, celebrates with Manchester City's Antoine Semenyo after scoring the opening goal during the English Premier League soccer match between Manchester City and Brentford in Manchester, Saturday, May 9, 2026. (AP Photo/Dave Thompson) AP / Dave Thompson Önnur úrslit Liverpool - Chelsea 1-1 Brighton - Wolves 3-0 Fulham - Bournemouth 0-1 Sunderland - Man Utd 0-0 9. maí 2026 kl. 18:31ERLENDAR FRÉTTIR Noregur Norðmenn ætla að auka olíuframleiðslu Olíu- og orkumálaráðherra Noregs segir nauðsynlegt að halda framleiðslu og olíuleit áfram til að tryggja orkuöryggi í Evrópu. Norðmenn eiga 97 olíulindir í hafi en stefna í að þær verði yfir 100 árið 2028. 9. maí 2026 kl. 17:34ERLENDAR FRÉTTIR Bretland Breskir farþegar Hondiusar fara í sóttkví Hugrún Hannesdóttir Diego Bresk yfirvöld stefna að því að breskir farþegar hollenska skemmtiferðaskipsins Hondíusar fari í sóttkví þegar þeir snúa aftur heim á mánudag. Bresk og bandarísk yfirvöld eru meðal þeirra sem skipulögðu sérstakar flugferðir til að koma löndum sínum sem voru um borð í skipinu heim, þegar það kemur til Tenerife á morgun. Þrír létu lífið um borð eftir að hantaveira greindist um borð um mánaðamótin. Þrír aðrir voru fluttir frá borði undan Grænhöfðaeyjum á dögunum. AP / Misper Apawu 9. maí 2026 kl. 17:05MENNING OG DÆGURMÁL Bandaríkin Jack Kirby heiðraður með götuheiti í New York Essex-stræti í New York verður að Jack Kirby-vegi. Nafnið er sótt til myndasöguhöfundarins sem kom að sköpun Iron Man, Fantastic Four, Captain America og Darkseid. 9. maí 2026 kl. 16:31MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Hallfríður Helga úr Þróttheimum sigraði í Samfés Félagsmiðstöðin Þróttheimar fagnaði sigri í söngkeppni Samfés í dag eftir flutning Hallfríðar Helgu Arnórsdóttur á laginu All by myself. 25 atriði frá félagsmiðstöðvum víðs vegar um landið tóku þátt í lokakeppninni í Laugardalshöll. 9. maí 2026 kl. 16:10INNLENDAR FRÉTTIR Íþró