Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Jarðskjálfti að stærðinni 3,8 í Bárðarbungu Brynja Dögg Friðriksdóttir Jarðskjálfti að stærðinni 3,8 mældist í Bárðarbungu klukkan 03:50 í nótt. Google map / Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Jarðskjálfti að stærðinni 3,8 mældist í Bárðarbungu klukkan 03:50 í nótt. Um 25 eftirskjálftar hafa fylgt samkvæmt upplýsingum frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Jarðskjálftar af þessari stærðargráðu eru nokkuð reglulegir í eldstöðinni. Síðast varð skjálfti af sömu stærð í Bárðarbungu þann 31. mars. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Hundruð fanga mótmæla í fangelsi Fangar gerðu uppreisn vegna pyndinga og illrar meðferðar í Barinas-fangelsinu. Þeir krefjast þess að fangelsisstjórinn verði rekinn. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tónlist Kunnugleg stef í Iðnó Þekkt stef úr dagskrá Ríkisútvarpsins voru blásin nýju lífi – í bókstaflegri merkingu – í Iðnó í kvöld, þar sem þau voru í flutningi margra færustu saxófónleikara þjóðarinnar. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Drengurinn fundinn heill á húfi Brynja Dögg Friðriksdóttir Google map Tveggja ára drengur sem leitað var að í Svíþjóð í gær er fundinn heill á húfi. Hann var nokkuð kaldur en við góða heilsu þegar hann fannst samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Drengurinn hvarf við sveitabæ stuttu fyrir hádegi í gærdag í Nyåker í sveitarfélaginu Nordmaling í Svíþjóð. Umfangsmikil leit var gerð að drengnum og tóku björgunarsveitir, lögregla með leitarhunda og hermenn þátt í leitinni. Lögreglan hefur ekki gefið upp hvort hvarf drengsins teljist saknæmt. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Fuglar og menn hlaut Einarinn – Heimkoman fékk Ljóskastarann Verðlaunahátíð og lokakvöld Skjaldborgar - hátíðar íslenskra heimildamynda fór fram á Patreksfirði í gærkvöld. Þetta er í 19. sinn sem hátíðin er haldin. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Strandveiðifélag Íslands sendir formlegar kvartanir til umboðsmanns Alþingis og Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) Kvartanir félagsins snúa að kerfisbundinni misnotkun á milliverðlagningu í fyrirtækjasamstæðum íslenskra útgerðarfélaga. Strandveiðifélagið segir íslenska ríkið hlunnfarið vegna þessa. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Umferð hefur gengið vel um Hvalfjarðargöng og Hvalfjörð Flestir ferðalangar um Vesturland eru meðvitaðir um næturlokanir Hvalfjarðarganga vegna viðgerða. Ferðalangar ættu að hafa í huga að leggja tímanlega af stað heimleiðis á morgun ef þeir ætla að ná opnunartíma gangnanna. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Formúla 1 Fjórði sigur Antonelli í röð Hans Steinar Bjarnason Kimi Antonelli vann sinn fjórða kappakstur í röð í Formúlu 1 þegar hann kom fyrstur í mark í kanadíska kappakstrinum í kvöld. Dramatísk uppákoma varð hjá liðsfélaga hans hjá Mercedes, George Russell. Þeir börðust hart um efsta sætið stærstan hluta kappakstursins og skiptust nokkrum sinnum á að leiða. Á 30. hring kom upp bilun í bíl Russells sem stöðvaðist á brautinni og hann þurfti að hætta. Mercedes ökuþórinn Kimi Antonelli í Kanada. AP/The Canadian Press / Christinne Muschi Lewis Hamilton varð annar á Ferrari og þá náði Max Verstappen loks sínum fyrsta verðlaunapalli á tímabilinu fyrir Red Bull. Sigurinn styrkir stöðu Antonelli verulega á toppi stigalista ökuþóra. Ítalinn er nú með 43 stiga forskot á Russell. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Drengur fannst látinn í Rennes með handklæði bundið um hálsinn Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir EPA / MARTIN LELIEVRE / POOL Tólf ára drengur fannst látinn með„blautt baðhandklæði bundið mjög þétt“ um hálsinn í borginni Rennes í Frakklandi í dag. Franska lögreglan hefur hafið morðrannsókn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu saksóknarans í Rennes. Drengurinn fannst í runna við bakka árinnar Vilaine, sem rennur í gegnum borgina, eftir að sjómaður heyrði óp í barni og hringdi í lögreglu. „Aðstæðurnar sem leiddu til dauðans eiga eftir að koma í ljós,“ en „aðkoma þriðja aðila er meðal tilgátanna,“ segir í yfirlýsingunni. Lögreglan hefur hafið rannsókn í kringum ána og íbúðabyggð í grennd. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar „Langstærsti hluti ábyrgðarinnar í þessu máli er á Karolinska háskólasjúkrahúsinu" Forstjóri Landspítala segir nýlegan dóm héraðsdóms í máli fjölskyldu Andemariams Beyene gegn íslenska ríkinu þungbæran. Hann segir Karolinska spítalann í Stokkhólmi bera mesta ábyrgð og getur ekki svarað því hvort Tómas snúi aftur til starfa. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Talinn af í yfir þrjú ár en snéri til baka á lífi Úkraínskur hermaður, sem talinn var hafa farist í árás Rússlandshers á fyrsta ári allsherjarinnrásarinnar, sneri óvænt til baka, lifandi, úr fangaskiptum fyrr á árinu. Fjölskylda hans hafði fengið líkamsleifar sendar, sem taldar voru af honum. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Áhugaleysi stjórnvalda vandi ferðamannaiðnaðarins Staða ferðaþjónustu á Íslandi er erfið að sögn formanns Félags fyrirtækja í hótelrekstri. Verðbólga og áhugaleysi stjórnvalda geri greininni erfitt fyrir. Ferðamönnum fjölgar sem finnst ferðalagið til Íslands ekki peningana virði. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Leitað að tveggja ára dreng í Nordmaling Ragnhildur Helgadóttir Tveggja ára drengs er leitað í Nyåker í sveitarfélaginu Nordmaling í Svíþjóð. Síðast sást til hans stuttu fyrir hádegi að íslenskum tíma við heimili á bóndabæ. Björgunarsveitir og lögregla með leitarhunda standa að leitinni auk þess sem notast er við þyrlur og dróna. Sænski herinn hefur einnig verið kallaður til. Viðbúið er að leitinni verði fram haldið inn í kvöldið og nóttina finnist drengurinn ekki. 24. maí 2026 kl. 19:48INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fleiri starfsmenn bráðamóttöku greinast með berkla: „Maður hefði viljað sjá sýkingavarnir hertar“ Fleiri starfsmenn bráðamóttöku Landspítala hafa greinst með berkla. Bráðalæknir sem greindist nýlega segir litlar breytingar hafa orðið á sýkingavörnum eftir að smit kom upp á deildinni í febrúar. 24. maí 2026 kl. 18:53INNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Enn skelfur jörð á Reykjaneshrygg Brynjólfur Þór Guðmundsson Íbúar á Reykjanesskaga urðu varir við jarðskjálfta um klukkan hálf sjö í kvöld. Sá var 2,9 að stærð og átti upptök sín um tíu kílómetra vestur af Reykjanestá. Skjálftinn er hluti af hrinu á Reykjanesskaga sem hófst um klukkan níu í gærkvöld. Alls hafa um 180 skjálftar mælst á tæplega sólarhring. Skjálftinn sem fólk fann fyrir um kvöldmatarleytið er næststærsti skjálftinn í hrinunni. Aðeins skjálfti upp á 3,5 sem reið yfir upp úr klukkan fimm í morgun hefur verið stærri. NASA 24. maí 2026 kl. 18:44INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Annar bátur flytur farþega milli Eyja og Landeyjahafnar Farþegabátur sigldi milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar í dag. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir aðstæður í höfninni kalla á fleiri lausnir. 24. maí 2026 kl. 18:26ÍÞRÓTTIR Handbolti Elín Klara Svíþjóðarmeistari Hans Steinar Bjarnason Elín Klara Þorkelsdóttir varð í dag sænskur meistari í handbolta með Sävehof. Elín Klara skoraði 8 mörk í sigri á Skara í framlengdum leik, 29-28. Sävehof vann úrslitaeinvígið 3-0 og vann alla sína leiki í úrslitakeppninni. Elín Klara (t.h.) með verðlaunagripinn í dag. IMAGO / Bildbyran Lena Margrét Valdimarsdóttir leikur með Skara og skoraði tvö mörk í leiknum. 24. maí 2026 kl. 17:46ERLENDAR FRÉTTIR Bretland Unglingspiltar dæmdir fyrir tvær hópnauðganir Vægur dómur yfir unglingspiltum vegna nauðgana hefur valdið hneykslan í Bretlandi. Piltarnir hópnauðguðu tveimur stúlkum og deildu upptökum af því á samfélagsmiðlum. 24. maí 2026 kl. 17:33MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Eitt erfiðasta sópranhlutverk óperubókmenntanna Að kvöldi hvítasunnudags verður flutt óperan „La Sonnambula“ eftir Vincenzo Bellini, hljóðritun frá sýningu Metrópólitan-óperunnar í New York, 18. október á liðnu ári. Nadine Sierra syngur aðalhlutverkið sem er eitt erfiðasta sópranhlutverkið. 24. maí 2026 kl. 17:22ÍÞRÓTTIR Fótbolti West Ham féll og þessi lið náðu Evrópusætum West Ham féll úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en Tottenham bjargaði sér frá falli þegar lokaumferðin var leikin. Liverpool náði meistaradeildarsæti, Sunderland og Bournemouth komust í Evrópudeildina og Brighton í Sambandsdeildina. 24. maí 2026 kl. 17:07INNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Heyrðu skothvell og sáu blóð á hurð Íbúar í Kársnesi lýsa partístandi í nótt og heyrðu skothvell í dag. Einn viðmælandi sagðist ekki hafa áttað sig á að hljóðið sem hann heyrði væri skothvellur fyrr en lögreglan mætti á staðinn. Lögregla hefur fundið skotvopn. 24. maí 2026 kl. 15:14ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump segir samningamönnum að flana ekki að neinu Brynjólfur Þór Guðmundsson Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist í dag hafa fyrirskipað samningamönnum Bandaríkjanna að fara sér að engu óðslega í viðræðum við Írani. Þetta sagði Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum. Hann sagði að viðræðurnar gengju vel og skipulega fyrir sig. „Ég hef sagt fulltrúum mínum að fara sér að engu óðslega því tíminn vinnur með okkur.“ Trump sagði jafnframt að hafnbann Bandaríkjanna á Íran yrði í fullu gildi þar til samningar hefðu náðst, þeir verið undirritaðir og staðfestir. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði fyrr í dag að góðar fréttir af viðræðum við Íran gætu borist á næstu klukkustundum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. EPA / WILL OLIVER 24. maí 2026 kl. 15:05ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Íran flytur HM-búðir sínar frá Bandaríkjunum til Mexíkó Íranska karlalandsliðið í fótbolta verður með æfingabúðir sínar í Mexíkó á HM í sumar þó svo að leikir liðsins verði í Bandaríkjunum. FIFA samþykkti beiðni Írana þess efnis. 24. maí 2026 kl. 14:05INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla leiddi mann út í járnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru í aðgerðum á Kársnesi í Kópavogi upp úr hádegi. Handjárnaður maður var leiddur út úr húsi. 2