Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Jarðskjálfti af stærðinni 3,8 í Bárðarbungu

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Jarð­skjálfti af stærð­inni 3,8 í Bárð­ar­bungu Brynja Dögg Friðriksdóttir Jarðskjálfti að stærðinni 3,8 mældist í Bárðarbungu klukkan 03:50 í nótt. Google map / Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Jarðskjálfti af stærðinni 3,8 mældist í Bárðarbungu klukkan 03:50 í nótt. Um 25 eftirskjálftar hafa fylgt samkvæmt upplýsingum frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Jarðskjálftar af þessari stærðargráðu eru nokkuð reglulegir í eldstöðinni. Síðast varð skjálfti af sömu stærð í Bárðarbungu þann 31. mars. Fyrir 6 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Sviss Sviss­lend­ing­ar kjósa um hvort tak­marka eigi íbúa­fjölda Í næsta mánuði kjósa íbúar Sviss um það hvort takmarka eigi íbúafjölda landsins við tíu milljónir. Tillagan, sem var lögð fram af Svissneska þjóðarflokknum, hefur verið gagnrýnd harðlega af öðrum stjórnmálaflokkum. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Yfir 100 ásak­an­ir um of­beldi og nauðg­an­ir í frönsk­um skólum Grunur leikur á að skólaliðar víða um Frakkland hafi beitt börn margvíslegu ofbeldi. Foreldrar segja að mistök hafi verið gerði í ráðningarferli skólaliða, sem og eftirliti, sem hafi gert þeim kleift að halda áfram misnotkuninni. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Rign­ing og skúrir í flest­um lands­hlut­um Búast má við skúrum víða um land í dag. Á fimmtudag gæti kólnað talsvert á Norðurlandi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg 92 ára list­mál­ari frá Eyr­ar­bakka gefur ekkert eftir Þrátt fyrir að Jón Ingi Sigurmundsson á Selfossi sé orðinn 92 ára gefur hann ekkert eftir í málaralistinni. Hann var að opna málverkasýningu á Eyrarbakka með 56 verkum. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Sund Um 140 er­lend­ir kepp­end­ur á sund­knatt­leiks­móti í Reykja­vík Hið árlega sundknattleiksmót Ármanns var í Laugardalslaug um helgina. Auk tveggja íslenskra liða mættu um 140 erlendir keppendur á mótið, sumir í fyrsta skipti en aðrir segja þetta eitt skemmtilegasta mót ársins og missa helst ekki af því. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Bens­ín­stöðv­um fækkar hratt Árið 2012 voru 1.200 bensínstöðvar í landinu en áætlað er að þær verði aðeins 730 árið 2034. Nær allir nýskráðir bílar eru rafbílar. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Hund­ruð fanga mót­mæla í fang­elsi Fangar gerðu uppreisn vegna pyndinga og illrar meðferðar í Barinas-fangelsinu. Þeir krefjast þess að fangelsisstjórinn verði rekinn. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tónlist Kunn­ug­leg stef í Iðnó Þekkt stef úr dagskrá Ríkisútvarpsins voru blásin nýju lífi – í bókstaflegri merkingu – í Iðnó í kvöld, þar sem þau voru í flutningi margra færustu saxófónleikara þjóðarinnar. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Dreng­ur­inn fund­inn heill á húfi Brynja Dögg Friðriksdóttir Google map Tveggja ára drengur sem leitað var að í Svíþjóð í gær er fundinn heill á húfi. Hann var nokkuð kaldur en við góða heilsu þegar hann fannst samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Drengurinn hvarf við sveitabæ stuttu fyrir hádegi í gærdag í Nyåker í sveitarfélaginu Nordmaling í Svíþjóð. Umfangsmikil leit var gerð að drengnum og tóku björgunarsveitir, lögregla með leitarhunda og hermenn þátt í leitinni. Lögreglan hefur ekki gefið upp hvort hvarf drengsins teljist saknæmt. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Fuglar og menn hlaut Ein­ar­inn – Heim­kom­an fékk Ljós­kast­ar­ann Verðlaunahátíð og lokakvöld Skjaldborgar - hátíðar íslenskra heimildamynda fór fram á Patreksfirði í gærkvöld. Þetta er í 19. sinn sem hátíðin er haldin. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Strand­veiði­fé­lag Ís­lands sendir form­leg­ar kvart­an­ir til um­boðs­manns Al­þing­is og Eft­ir­lits­stofn­un­ar EFTA (ESA) Kvartanir félagsins snúa að kerfisbundinni misnotkun á milliverðlagningu í fyrirtækjasamstæðum íslenskra útgerðarfélaga. Strandveiðifélagið segir íslenska ríkið hlunnfarið vegna þessa. 24. maí 2026 kl. 22:59INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Umferð hefur gengið vel um Hval­fjarð­ar­göng og Hval­fjörð Flestir ferðalangar um Vesturland eru meðvitaðir um næturlokanir Hvalfjarðarganga vegna viðgerða. Ferðalangar ættu að hafa í huga að leggja tímanlega af stað heimleiðis á morgun ef þeir ætla að ná opnunartíma gangnanna. 24. maí 2026 kl. 22:15ÍÞRÓTTIR Formúla 1 Fjórði sigur Ant­on­elli í röð Hans Steinar Bjarnason Kimi Antonelli vann sinn fjórða kappakstur í röð í Formúlu 1 þegar hann kom fyrstur í mark í kanadíska kappakstrinum í kvöld. Dramatísk uppákoma varð hjá liðsfélaga hans hjá Mercedes, George Russell. Þeir börðust hart um efsta sætið stærstan hluta kappakstursins og skiptust nokkrum sinnum á að leiða. Á 30. hring kom upp bilun í bíl Russells sem stöðvaðist á brautinni og hann þurfti að hætta. Mercedes ökuþórinn Kimi Antonelli í Kanada. AP/The Canadian Press / Christinne Muschi Lewis Hamilton varð annar á Ferrari og þá náði Max Verstappen loks sínum fyrsta verðlaunapalli á tímabilinu fyrir Red Bull. Sigurinn styrkir stöðu Antonelli verulega á toppi stigalista ökuþóra. Ítalinn er nú með 43 stiga forskot á Russell. 24. maí 2026 kl. 21:48ERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Dreng­ur fannst látinn í Rennes með hand­klæði bundið um háls­inn Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir EPA / MARTIN LELIEVRE / POOL Tólf ára drengur fannst látinn með„blautt baðhandklæði bundið mjög þétt“ um hálsinn í borginni Rennes í Frakklandi í dag. Franska lögreglan hefur hafið morðrannsókn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu saksóknarans í Rennes. Drengurinn fannst í runna við bakka árinnar Vilaine, sem rennur í gegnum borgina, eftir að sjómaður heyrði óp í barni og hringdi í lögreglu. „Aðstæðurnar sem leiddu til dauðans eiga eftir að koma í ljós,“ en „aðkoma þriðja aðila er meðal tilgátanna,“ segir í yfirlýsingunni. Lögreglan hefur hafið rannsókn í kringum ána og íbúðabyggð í grennd. 24. maí 2026 kl. 21:12INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar „Lang­stærsti hluti ábyrgð­ar­inn­ar í þessu máli er á Kar­ol­inska há­skóla­sjúkra­hús­inu" Forstjóri Landspítala segir nýlegan dóm héraðsdóms í máli fjölskyldu Andemariams Beyene gegn íslenska ríkinu þungbæran. Hann segir Karolinska spítalann í Stokkhólmi bera mesta ábyrgð og getur ekki svarað því hvort Tómas snúi aftur til starfa. 24. maí 2026 kl. 20:44ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Talinn af í yfir þrjú ár en snéri til baka á lífi Úkraínskur hermaður, sem talinn var hafa farist í árás Rússlandshers á fyrsta ári allsherjarinnrásarinnar, sneri óvænt til baka, lifandi, úr fangaskiptum fyrr á árinu. Fjölskylda hans hafði fengið líkamsleifar sendar, sem taldar voru af honum. 24. maí 2026 kl. 20:21INNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Áhuga­leysi stjórn­valda vandi ferða­manna­iðn­að­ar­ins Staða ferðaþjónustu á Íslandi er erfið að sögn formanns Félags fyrirtækja í hótelrekstri. Verðbólga og áhugaleysi stjórnvalda geri greininni erfitt fyrir. Ferðamönnum fjölgar sem finnst ferðalagið til Íslands ekki peningana virði. 24. maí 2026 kl. 20:18ERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Leitað að tveggja ára dreng í Nordmal­ing Ragnhildur Helgadóttir Tveggja ára drengs er leitað í Nyåker í sveitarfélaginu Nordmaling í Svíþjóð. Síðast sást til hans stuttu fyrir hádegi að íslenskum tíma við heimili á bóndabæ. Björgunarsveitir og lögregla með leitarhunda standa að leitinni auk þess sem notast er við þyrlur og dróna. Sænski herinn hefur einnig verið kallaður til. Viðbúið er að leitinni verði fram haldið inn í kvöldið og nóttina finnist drengurinn ekki. 24. maí 2026 kl. 19:48INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fleiri starfs­menn bráða­mót­töku grein­ast með berkla: „Maður hefði viljað sjá sýk­inga­varn­ir hertar“ Fleiri starfsmenn bráðamóttöku Landspítala hafa greinst með berkla. Bráðalæknir sem greindist nýlega segir litlar breytingar hafa orðið á sýkingavörnum eftir að smit kom upp á deildinni í febrúar. 24. maí 2026 kl. 18:53INNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Enn skelf­ur jörð á Reykja­nes­hrygg Brynjólfur Þór Guðmundsson Íbúar á Reykjanesskaga urðu varir við jarðskjálfta um klukkan hálf sjö í kvöld. Sá var 2,9 að stærð og átti upptök sín um tíu kílómetra vestur af Reykjanestá. Skjálftinn er hluti af hrinu á Reykjanesskaga sem hófst um klukkan níu í gærkvöld. Alls hafa um 180 skjálftar mælst á tæplega sólarhring. Skjálftinn sem fólk fann fyrir um kvöldmatarleytið er næststærsti skjálftinn í hrinunni. Aðeins skjálfti upp á 3,5 sem reið yfir upp úr klukkan fimm í morgun hefur verið stærri. NASA 24. maí 2026 kl. 18:44INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Annar bátur flytur far­þega milli Eyja og Land­eyja­hafn­ar Farþegabátur sigldi milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar í dag. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir aðstæður í höfninni kalla á fleiri lausnir. 24. maí 2026 kl. 18:26ÍÞRÓTTIR Handbolti Elín Klara Sví­þjóð­ar­meist­ari Hans Steinar Bjarnason Elín Klara Þorkelsdóttir varð í dag sænskur meistari í handbolta með Sävehof. Elín Klara skoraði 8 mörk í sigri á Skara í framlengdum leik, 29-28. Sävehof vann úrslitaeinvígið 3-0 og vann alla sína leiki í úrslitakeppninni. Elín Klara (t.h.) með verðlaunagripinn í dag. IMAGO / Bildbyran Lena Margrét Valdimarsdóttir leikur með Skara og skoraði tvö mörk í leiknum. 24. maí 2026 kl. 17:46ERLENDAR FRÉTTIR Bretland Ung­lings­pilt­ar dæmdir fyrir tvær hóp­nauðg­an­ir Vægur dómur yfir unglingspiltum vegna nauðgana hefur valdið hneykslan í Bretlandi. Piltarnir hópnauðguðu tveimur stúlkum og deildu upptökum af því á samfélagsmiðlum. 24. maí 2026 kl. 17:33MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Eitt erf­ið­asta sópran­hlut­verk óp­eru­bók­mennt­anna Að kvöldi hvítasunnudags verður flutt óperan „La Sonnambula“ eftir Vincenzo Bellini, hljóðritun frá sýningu Metrópólitan-óperunnar í New York, 18. október á liðnu ári. Nadine Sierra syngur aðalhlutverkið sem er eitt erfiðasta sópranhlutverkið. 24. maí 2026 kl. 17:22ÍÞRÓTTIR Fótbolti West Ham féll og þessi lið náðu Evr­ópu­sæt­um West Ham féll úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en Tottenham bjargaði sér frá falli þegar lokaumferðin var leikin. Liverpool náði meistaradeildarsæti, Sunderland og Bournemouth komust í Evrópudeild

Share this article