Orri Hauksson og Gunnar Fjalar Helgason, sem störfuðu lengi saman hjá Símanum, hafa gengið frá kaupum á iðnfyrirtækinu Set ehf. á Selfossi. Seljendur eru fjölskyldan sem stofnaði félagið og rak fyrstu áratugina. Set er um hálfrar aldar gamalt framleiðslufyrirtæki, sem sérhæfir sig í framleiðslu einangraðra röra og plaströra fyrir innviðakerfi, svo sem hita-, vatns- og fráveitur. Þá er búnaður félagsins nýttur í matvælaframleiðslu, vegagerð, fjarskiptakerfum og framkvæmdaiðnaði. Utan höfuðstöðvanna á Selfossi starfrækir félagið sölustarfsemi í Danmörku, framleiðslu í Þýskalandi og lagerhald í Reykjavík. Félagið veltir ríflega 5 milljörðum króna á ári og er að jafnaði með um hundrað manns í vinnu, flesta á Suðurlandi. Einar Elíasson stofnaði félagið Steypuiðjuna árið 1968 á Selfossi og setti Set á laggirnar áratug síðar, 1978. Bræðurnir Bergsteinn og Örn Einarssynir stýrðu félaginu lengi vel og aðrir afkomendur stofnandans hafa unnið þar fram á þennan dag. Sjá einnig Áföllin hafi fleytt fyrirtækinu áfram Set ehf. var sett í söluferli árið 2024. Bergsteinn Einarsson, þáverandi forstjóri Sets, var í ítarlegu viðtali í Viðskiptablaðinu við það tilefni. Kaupendurnir Orri og Gunnar Fjalar voru saman í stjórnendateymi Símans í rúman áratug þar til nýlega, Orri sem forstjóri og Gunnar sem yfirmaður fjárfestinga og stefnumótunar. Orri er stjórnarformaður landeldisfyrirtækisins First Water í Þorlákshöfn og var áður framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og fjárfestingastjóri hjá Novator Capital Partners. Gunnar starfaði áður í fjárfestingabanka í Bandaríkjunum og rak fjárfestingarsjóð á Íslandi. Kaupendur nutu ráðgjafar Arion banka og Logos lögmannsstofu við kaupin, auk þess sem Arion fjármagnar hluta kaupanna. KPMG ráðlagði seljendum í viðskiptunum. „ Við fögnum því að taka við þessu trausta iðnfyrirtæki á Suðurlandi. Fjölskyldufyrirtæki eru algengasta og árangursríkasta rekstrarform fyrirtækja í heiminum. Eftir því sem tíminn líður þróast eignarhald slíkra fyrirtækja iðulega og að okkar mati er fyrirtaks tími núna að næstu eigendur taki við Seti,“ segir Orri Hauksson , nýr stjórnarformaður Sets. „Sem nýir hluthafar berum við mikla virðingu fyrir farsælli sögu félagsins og þeirri gæðaframleiðslu sem fjölskyldan hefur byggt upp með öflugum starfsmönnum og stjórnendum. Við hlökkum til að taka þátt í framþróun félagsins og halda áfram þessu góða starfi til langs tíma. Okkur þykir mikilvægt að halda góðu sambandi við seljendur eftir eigendaskiptin og nýta þeirra uppsöfnuðu þekkingu eins og framast er unnt.“ Set er um hálfrar aldar gamalt framleiðslufyrirtæki, sem sérhæfir sig í framleiðslu einangraðra röra og plaströra fyrir innviðakerfi, svo sem hita-, vatns- og fráveitur. © Aðsend mynd (AÐSEND) Orri segir tækifærin á Íslandi vera margvísleg. Set byggi framleiðslu sína á hreinum endurnýjanlegum orkugjöfum, en innflutt samkeppni reiði sig einatt á jarðefnaeldsneyti og þunglamalegar flutningakeðjur. „Framundan á Íslandi er að byggja upp nýja innviði í veitustarfsemi, orkuöflun og vegagerð, auk þess að uppfæra neðanjarðarhagkerfið, ef svo má kalla, sem víða er komið til ára sinna í okkar góða landi. Þá er matvælaframleiðsla í örum vexti á Íslandi og þarfnast sú starfsemi hágæðainnviða á borð við þá sem Set framleiðir.“ Hann bendir á að íslenskt efnahagslíf sé útflutningsdrifið en stór hluti neysluvara okkar og iðnvarnings sé innfluttur. Engu að síður sé rík þörf fyrir staðbundna þjónustu og öfluga innlenda framleiðslugetu, sér í lagi þegar kemur að lykilinnviðum. Mikilvægi þessarar innlendu viðbragðsgetu hafi sannast svo um munaði í nýafstöðnum jarðeldum á Suðurnesjum. „Við þær krefjandi aðstæður tókst Seti að afhenda nauðsynlegan lagnabúnað á örskammri stundu til að lágmarka tjón á kerfum - sem öllu skipti fyrir daglegt líf fólks á svæðinu. Félagið er því mikilvægur viðbragðsaðili varðandi öryggi innviða á veitusviði,“ segir Orri. „Starfsemi félagsins einkennist af ríkri gæðavitund og háu tæknistigi, þar sem áhersla á framleiðni og viðbragðsflýti tryggir að fyrirtækið getur mætt krefjandi verkefnum hratt og örugglega. Það er alltaf sumar á Selfossi. Þessi sterka staða og mikilvægi fyrirtækisins fyrir lykilinnviði lands heillaði okkur, nýja eigendur Sets. Sá er andinn sem hvetur okkur til áframhaldandi uppbyggingar á þeim trausta grunni sem fyrir er.“ Jákvætt skref fyrir framtíð Sets Örn Einarsson, fráfarandi stjórnarformaður Sets, segir að fjölskyldan sé ánægð með nýja eigendur félagsins. „ Saga Einars Elíassonar og fjölskyldu hans er samofin rekstri þessa merkilega félags og við erum stolt af þeim afrakstri og þeim árangri sem náðst hefur í gegnum árin. Á sama tíma vitum við að áfram eru gífurlegir möguleikar til vaxtar og mikil þörf fyrir það mikilvæga starf sem fyrirtækið sinnir. Eftir áratuga uppbyggingu af hálfu Einars og afkomenda hans er komið að því að færa reksturinn yfir á nýjar hendur. Við teljum það jákvætt skref fyrir framtíð félagsins. Nýir eigendur koma með nýja sýn, ný tækifæri og aukinn kraft til áframhaldandi uppbyggingar og þróunar,“ segir Örn . „ Við erum þess fullviss að viðskiptavinir munu áfram kunna að meta þá þjónustu, þekkingu og framleiðslu sem Set hefur byggt upp í gegnum tíðina, sem og það öryggi sem felst í því að framleiða mikilvæga innviði fyrir íslenskt samfélag. Þar má nefna lagnakerfi fyrir hitaveitur, vatnsveitur og fráveitur, auk nýrra og ört vaxandi atvinnugreina á borð við fiskeldi sem á síðustu árum hefur orðið mikilvægur þáttur í uppbyggingu atvinnulífs á Íslandi. Við viljum þakka starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir traustið og samstarfið í gegnum árin og hlökkum til að fylgjast með Set halda áfram að vaxa og dafna á komandi árum. “ Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir, forstjóri Sets, segir þetta vera stór og spennandi tímamót hjá iðnfyrirtækinu. Sjá einnig Guðbjörg tekur við af Bergsteini „Nýir eigendur koma inn með nýja sýn og víðtæka reynslu sem mun styrkja áframhaldandi vöxt á þeim trausta grunni sem Set býr yfir,“ segir Guðbjörg Sæunn . Starfsfólkið okkar hefur staðið sig stórkostlega í gegnum þetta ferli og sýnt ótrúlega þrautseigju, það er ekki sjálfgefið og vil ég þakka þeim heilshugar. Starfsfólkið er hjartað í fyrirtækinu og slær taktinn alla daga.“