Viðskipti | mbl | 12.5.2026 | 13:20 Fyrrverandi stjórnendur Símans kaupa Set „Við fögnum því að taka við þessu trausta iðnfyrirtæki á Suðurlandi," segir Orri Hauksson í tilkynningu. Samsett mynd/Aðsend/mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Orri Hauksson, fyrrverandi forstjóri Símans, og Gunnar Fjalar Helgason hagfræðingur hafa fest kaup á iðnfyrirtækinu Set ehf. á Selfossi. Félagið er um hálfrar aldar gamalt framleiðslufyrirtæki, sem sérhæfir sig í framleiðslu einangraðra röra og plaströra fyrir innviðakerfi, svo sem hita-, vatns- og fráveitur. Búnaður félagsins er nýttur í matvælaframleiðslu, vegagerð, fjarskiptakerfum og framkvæmdaiðnaði, að því er kemur fram í tilkynningu. Veltir ríflega fimm milljörðum á ári Seljendur eru fjölskyldan sem stofnaði félagið og rak fyrstu áratugina. Einar Elíasson stofnaði félagið Steypuiðjuna árið 1968 á Selfossi og setti Set á laggirnar áratug síðar, eða árið 1978. Bræðurnir Bergsteinn og Örn Einarssynir stýrðu félaginu lengi vel og aðrir afkomendur stofnandans hafa unnið þar fram á þennan dag. Utan höfuðstöðvanna á Selfossi starfrækir félagið sölustarfsemi í Danmörku, framleiðslu í Þýskalandi og lagerhald í Reykjavík. Félagið veltir ríflega fimm milljörðum króna á ári og er að jafnaði með um hundrað manns í vinnu, flesta á Suðurlandi. Set sérhæfir sig í framleiðslu einangraðra röra og plaströra fyrir innviðakerfi. Ljósmynd/Aðsend Voru saman í stjórnendateymi Símans Kaupendurnir Orri og Gunnar Fjalar voru saman í stjórnendateymi Símans í rúman áratug þar til nýlega, Orri sem forstjóri og Gunnar sem yfirmaður fjárfestinga og stefnumótunar. Frétt af mbl.is María Björk nýr forstjóri Símans Orri er stjórnarformaður landeldisfyrirtækisins First Water í Þorlákshöfn og var áður framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og fjárfestingastjóri hjá Novator Capital Partners. Gunnar starfaði áður í fjárfestingabanka í Bandaríkjunum og rak fjárfestingarsjóð á Íslandi. Kaupendur nutu ráðgjafar Arion banka og Logos lögmannsstofu við kaupin, auk þess sem Arion fjármagnar hluta kaupanna. KPMG ráðlagði seljendum í viðskiptunum. Ljósmynd/Aðsend Fyrirtaks tími til að taka við „Við fögnum því að taka við þessu trausta iðnfyrirtæki á Suðurlandi. Fjölskyldufyrirtæki eru algengasta og árangursríkasta rekstrarform fyrirtækja í heiminum. Eftir því sem tíminn líður þróast eignarhald slíkra fyrirtækja iðulega og að okkar mati er fyrirtaks tími núna að næstu eigendur taki við Seti. Sem nýir hluthafar berum við mikla virðingu fyrir farsælli sögu félagsins og þeirri gæðaframleiðslu sem fjölskyldan hefur byggt upp með öflugum starfsmönnum og stjórnendum. Við hlökkum til að taka þátt í framþróun félagsins og halda áfram þessu góða starfi til langs tíma. Okkur þykir mikilvægt að halda góðu sambandi við seljendur eftir eigendaskiptin og nýta þeirra uppsöfnuðu þekkingu eins og framast er unnt,” segir Orri Hauksson, nýr stjórnarformaður Sets, í tilkynningunni. Orri Hauksson. mbl.is/Sigurður Bogi Örn Einarsson, fráfarandi stjórnarformaður Set ehf. bætir við: „Við fjölskyldan erum ánægð með að kynna nýja eigendur sem taka við rekstri félagsins. Saga Einars Elíassonar og fjölskyldu hans er samofin rekstri þessa merkilega félags og við erum stolt af þeim afrakstri og þeim árangri sem náðst hefur í gegnum árin. Á sama tíma vitum við að áfram eru gífurlegir möguleikar til vaxtar og mikil þörf fyrir það mikilvæga starf sem fyrirtækið sinnir. Eftir áratuga uppbyggingu af hálfu Einars og afkomenda hans er komið að því að færa reksturinn yfir á nýjar hendur. Við teljum það jákvætt skref fyrir framtíð félagsins. Nýir eigendur koma með nýja sýn, ný tækifæri og aukinn kraft til áframhaldandi uppbyggingar og þróunar,” segir hann. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Baðlónum drekkt með skattheimtu Sigurður Már Jónsson Skáldaraunir, pólitík og verðlaun Fleira áhugavert Segir vopnahléið vera í öndunarvél Síðasti öruggi dagurinn er í dag Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Þrotabúið fær ávinning af Möltudæminu Spá 4,9% verðbólgu í maí Lýður kaupir fyrir milljarða í Kviku banka Kvikumenn fá ekki að áfrýja og verða að greiða tekjuskatt Sjálfbærni er góð fyrir viðskiptin Framkoman situr lengi í fólki Eiga vélarnar framhaldslíf? Góð viðbrögð við nýjum styrktarsjóði Kærir úrskurð um vanhæfi sitt Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Lýður kaupir fyrir milljarða í Kviku banka Kvikumenn fá ekki að áfrýja og verða að greiða tekjuskatt Framkoman situr lengi í fólki Sjálfbærni er góð fyrir viðskiptin Góð viðbrögð við nýjum styrktarsjóði 40 milljarða skattar hækkað um helming Jón Elvar ráðinn framkvæmdastjóri LOGOS Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Eiga vélarnar framhaldslíf? Stjórn Kviku vill greiða 10 milljarða króna í arð Ólafur ráðinn framkvæmdastjóri Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Pálmi ráðinn framkvæmdastjóri Norðmenn fyrstir á meginlandi Evrópu til að hækka Beita Bónusáhrifunum gegn verðbólgunni Framkoman situr lengi í fólki Lýður kaupir fyrir milljarða í Kviku banka Eiga vélarnar framhaldslíf? Þróar frumlyf gegn alvarlegum fylgikvillum meðferðar Ragna Klara nýr framkvæmdastjóri Signicat á Íslandi Pistlar » Sigurður Már Jónsson Baðlónum drekkt með skattheimtu Sigurður Már Jónsson Skáldaraunir, pólitík og verðlaun Fleira áhugavert Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Þrotabúið fær ávinning af Möltudæminu Spá 4,9% verðbólgu í maí Lýður kaupir fyrir milljarða í Kviku banka Kvikumenn fá ekki að áfrýja og verða að greiða tekjuskatt Sjálfbærni er góð fyrir viðskiptin Framkoman situr lengi í fólki Eiga vélarnar framhaldslíf? Góð viðbrögð við nýjum styrktarsjóði Kærir úrskurð um vanhæfi sitt Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Lýður kaupir fyrir milljarða í Kviku banka Kvikumenn fá ekki að áfrýja og verða að greiða tekjuskatt Framkoman situr lengi í fólki Sjálfbærni er góð fyrir viðskiptin Góð viðbrögð við nýjum styrktarsjóði 40 milljarða skattar hækkað um helming Jón Elvar ráðinn framkvæmdastjóri LOGOS Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Eiga vélarnar framhaldslíf? Stjórn Kviku vill greiða 10 milljarða króna í arð Ólafur ráðinn framkvæmdastjóri Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Pálmi ráðinn framkvæmdastjóri Norðmenn fyrstir á meginlandi Evrópu til að hækka Beita Bónusáhrifunum gegn verðbólgunni Framkoman situr lengi í fólki Lýður kaupir fyrir milljarða í Kviku banka Eiga vélarnar framhaldslíf? Þróar frumlyf gegn alvarlegum fylgikvillum meðferðar Ragna Klara nýr framkvæmdastjóri Signicat á Íslandi