Ferðaþjónustusamstæðan Arctic Adventures hagnaðist 954 milljónir króna á síðasta ári. Hagnaður ársins 2024 nam 805 milljónum og jókst því um 19% á milli ára. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 11,8 milljörðum á síðasta ári, samanborið við 9,5 milljarða árið áður, og jukust þar af leiðandi um nærri fjórðung á milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 2,4 milljörðum en var 1,8 milljarðar árið áður. EBITDA jókst því um 35% á milli áranna 2024 og 2025. Meginstarfsemi samstæðunnar er rekstur ævintýra- og afþreyingarferða, rekstur áfangastaða, hótelrekstur og ferðabílaleiga. Ferðir félagsins eru bæði dagsferðir og lengri ferðir með gistingu, einkum fyrir erlenda ferðamenn. Helstu afþreyingarferðir eru meðal annars hvalaskoðun, gönguferðir, hellaskoðun, jöklagöngur, íshellaferðir, norðurljósaferðir, snjósleðaferðir köfun og snorkl, auk annarra ferða í minni hópum. Samstæðan rekur vinsæla áfangastaði, þar á meðal Into the Glacier í Langjökli, Lava Tunnel í Raufarhólshelli, Kerið í Grímsnesi, Fjaðrárgljúfur við Kirkjubæjarklaustur, Hvalasafnið á Granda og Óbyggðasetrið. Þá rekur samstæðan þrjú hótel með alls um 131 herbergi sem staðsett eru á Kirkjubæjarklaustri, í Öræfum og á Hellissandi. Félagið tók alls á móti 1,6 milljónum gesta í fyrra. Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures, segir síðasta ár hafa einkennst af áframhaldandi vexti, bæði innri og ytri. Á árinu 2025 eignaðist samstæðan Fjaðrárgljúfur og Happy Campers, sem leigir út fullbúna ferðabíla fyrir ferðamenn. Þá hóf félagið uppbyggingu á smáhýsum í Skaftafelli sem tekin verða í notkun á þessu ári. „Síðasta ár var í samræmi við þau markmið og áætlanir sem við settum okkur fyrir árið.“ Í nóvember var undirritað samkomulag milli stjórna Arctic Adventures og Kynnisferða vegna áforma um sameiningu félaganna. Samkomulagið var gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögum, samþykki Samkeppniseftirlitsins sem og samþykki á hluthafafundum félaganna. Spurður um stöðuna á viðskiptunum segir Ásgeir að búið sé að ljúka áreiðanleikakönnun og hann geri ráð fyrir að draga muni til tíðinda áður en langt um líður. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .