Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures ferðaþjónustusamstæðunnar, segir horfur fyrir yfirstandandi ár þokkalegar þrátt fyrir krefjandi ytri aðstæður og nefnir í því samhengi miklar hækkanir á olíuverði vegna stríðsins í Íran. „Þetta hefur í för með sér hækkandi verð á flugi og flugfélög hafa mörg hver brugðist við ástandinu með því að draga úr flugframboði.“ Í ljósi þessa telur Ásgeir afar óráðlegt hjá ríkisstjórninni að ráðast í boðaða aukna skattheimtu og álögur á ferðaþjónustuna. „Það væri æskilegt ef stjórnvöld myndu ráðast í aðgerðir sem styrkja stöðu greinarinnar í stað þess að draga úr alþjóðlegri samkeppnishæfni hennar. Sterkt raungengi krónunnar er ferðaþjónustunni erfiður ljár í þúfu þegar horft er til samkeppnishæfni og með því að auka skattbyrði þyngist róðurinn enn frekar.“ Arctic Adventures hagnaðist 954 milljónir króna á síðasta ári. Hagnaður ársins 2024 nam 805 milljónum og jókst því um 19% á milli ára. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 11,8 milljörðum á síðasta ári, samanborið við 9,5 milljarða árið áður, og jukust þar af leiðandi um nærri fjórðung á milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 2,4 milljörðum en var 1,8 milljarðar árið áður. EBITDA jókst því um 35% á milli áranna 2024 og 2025. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .