Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bláa Lónið og Arctic Adventures sam­einast

Read Full Article →

Bláa Lónið hf. og Arctic Adventures hf. hafa undirritað samkomulag um samruna ferðaþjónustufyrirtækjanna. Sameinað félag yrði langstærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, sé fluggeirinn tekinn út fyrir sviga. Samkomulagið er gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögunum, samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki hluthafafunda félaganna. Samanlagðar tekjur félaganna voru um 34,3 milljarðar króna á árinu 2025 og samanlagður fjöldi stöðugilda um 1.120. Heildarfjöldi stöðugilda hjá Bláa Lóninu er 780 og hjá Arctic Adventures 340. „Með sameiningunni verður til kraftmikið ferðaþjónustufyrirtæki á breiðum grunni sem verður leiðandi afl í rekstri og þróun íslenskrar upplifunar- og vellíðunarferðamennsku,“ segir í fréttatilkynningu. Undir rekstur Bláa Lónsins fellur samnefndur áfangastaður og tengd starfsemi á Reykjanesi, þar á meðal hótelin The Retreat og Silica. Auk þess á félagið og rekur Highland Base í Kerlingarfjöllum og er að byggja upp baðstað, hótel og alhliða ferðaþjónustu í Þjórsárdal auk þess að undirbúa uppbyggingu á Hoffelli í Hornafirði. Sjá einnig Milljarða fjárfestingar Bláa Lónsins Þá á félagið hlutdeild í baðstöðunum Fontana við Laugarvatn, Jarðböðunum við Mývatn, Sjóböðunum á Húsavík og Vök á Egilsstöðum. Einnig hefur félagið á starfstíma sínum þróað og byggt upp húðvörufyritækið Blue Lagoon Skincare ehf, sem er stærsta fyrirtæki landsins í þeim geira. Arctic Adventures sérhæfir sig á sviði ævintýra- og afþreyingarferðaþjónustu á Íslandi og rekur meðal annars vinsæla áfangastaði á borð við Fjaðrárgljúfur, Kerið og Raufarhólshelli. Félagið hafði verið í samrunaviðræðum við Kynnisferðir (Icelandia) en þeim var slitið í síðustu viku. Sjá einnig Arctic Adventures og Kynnis­ferðir slíta viðræðum „Það er markmið okkar að Bláa Lónið leiði áfram uppbyggingu og fjárfestingar sem staðsetja Ísland sem einn af fremstu upplifunar og vellíðunar áfangastöðum heims. Kaup á Arctic Adventures er mikilvægt skref í þá átt. Upplifun og vellíðan er bæði okkar sérstaða og styrkleiki.“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir , forstjóri Bláa Lónsins. „Þetta eru tímamót fyrir Arctic Adventures. Bláa Lónið hefur byggt upp eitt sterkasta vörumerki Íslands á alþjóðavísu og með sameiginlegum styrk félaganna skapast einstakt tækifæri til áframhaldandi og þróunar. Við hlökkum til að taka þátt í þeirri vegferð og styrkja enn frekar stöðu Íslands sem vaxtaráfangastaðar í harðri samkeppni á alþjóðlegum ferðaþjónustumarkaði“, segir Ásgeir Baldurs , forstjóri Arctic Adventures. Sjá einnig Ferðaþjónusturisi jók hagnað og veltu Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans er ráðgjafi kaupanda og ARMA Advisory er ráðgjafi seljanda í viðskiptunum. Bláa Lónið hefur hafið formlegan undirbúning að skráningu á íslenskan hlutabréfamarkað. Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins.

Share this article