Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Styrkás hf. á öllu hlutafé í Gallon ehf. af Skel fjárfestingarfélagi og þar með eru öll skilyrði kaupsamnings uppfyllt, að því er kemur fram í tilkynningu frá Styrkási. Styrkás tilkynnti um kaupin þann 5. febrúar sl. um kaup dótturfélagsins Skeljungs á öllu hlutafé í Gallon ehf. Sjá einnig Skel selur Gallon til Styrkáss Heildarvirði Gallon í viðskiptunum (e. enterprise value), að meðtöldum 25% eignarhlut félagsins í EBK ehf., er um 2,9 milljarðar króna. Kaupverð hlutafjár nemur um 500 milljónum króna og er um 300 m.kr. af kaupverði greiddur með útgáfu um 11,8 milljón nýrra hluta í Styrkási hf. „Tilgangur kaupanna er að styrkja kjarnasvið Styrkás í Orku og efnavöru en Gallon rekur birgða- og geymarými á sex stöðum og sinnir jafnframt geymslu flugeldsneytis á sjö flugvöllum.“ Gallon annast móttöku, geymslu og afgreiðslu eldsneytis frá birgðastöðvum félagsins víðs vegar um landið, þar sem eldsneyti er afgreitt beint um borð í skip og á olíubíla. Félagið rekur birgða- og geymarými og sinnir jafnframt geymslu flugeldsneytis. Birgðastöðin í Örfirisey er með 14 geymslutanka og gegnir lykilhlutverki í starfsemi Gallon sem langstærsta birgðastöð félagsins, bæði hvað varðar geymarými og umfang afgreiðslna. Velta Gallon árið 2025 nam um 600 milljónum króna og rekstrarhagnaður eftir afskriftir (EBIT) var 167 milljónir króna. Hjá Gallon starfa sex starfsmenn. Gallon á jafnframt 25% hlut í EBK ehf., sem rekur birgðastöð á Keflavíkurflugvelli og er sá hlutur með í kaupunum. „Kaup á Gallon falla vel að starfsemi Skeljungs og styrkja innviði félagsins á sviði sölu, dreifingar og afhendingar eldsneytis til viðskiptavina. Með kaupunum bætist við mikilvæg sérþekking og innviðir sem styrkja stöðu Skeljungs sem þjónustuaðila á sviði orku, efnavara og innviða,“ segir Þórður Guðjónsson , forstjóri Skeljungs. Styrkás er þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði sem þjónustar innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. Starfsemi Styrkás byggir á fjórum kjarnasviðum: orku og efnavöru, tækjum og búnaði, eignaumsýslu og leigustarfsemi og umhverfis- og iðnaðarþjónustu. Dótturfélög Styrkás eru Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni, sem saman mynda samstæðu félagsins. „Kaup á Gallon eru í samræmi við stefnu Styrkás um markvissa uppbyggingu á kjarnasviðum félagsins. Með viðskiptunum er verið að styrkja innviði innan kjarnasviðs orku og efnavöru og efla virðiskeðjuna í afgreiðslu og geymslu eldsneytis,“ segir Ásmundur Tryggvason , forstjóri Styrkáss. Ráðgjafar kaupanda í viðskiptunum eru Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og Logos lögmannsþjónusta. Ráðgjafar seljanda í viðskiptunum eru ARMA Advisory og BBA // Fjeldco.