Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bjartsýnn þrátt fyrir skammtímaóvissu

Read Full Article →

Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures, segir áhyggjuefni að dregið hafi úr komum ferðamanna frá Bandaríkjunum til Íslands á fyrri hluta ársins enda Bandaríkjamarkaður mjög mikilvægur íslenskri ferðaþjónustu. Þrátt fyrir það líti bókunarstaða sumarsins vel út hjá samstæðunni. „Sólmyrkvinn í ágúst hefur svo sannarlega haft jákvæð áhrif á bókunarstöðuna og vonandi tekst okkur í ferðaþjónustunni að gera þá upplifun eins góða fyrir ferðamenn og kostur er á.“ Þrátt fyrir góða bókunarstöðu í sumar kveðst Ásgeir hafa varann á vegna stöðunnar á flugmarkaði þar sem flugframboð gæti dregist hratt saman á alþjóðavísu. Að sama skapi sé óvissan inn í haustið töluverð. „Við fylgjumst mjög grannt með öllu sem er að gerast því að afbókunarfyrirvari í afþreyingu, sem er lykilstarfsemi í okkar rekstri, er fremur stuttur.“ Hann leggur áherslu á að þrátt fyrir að óvissa liti stöðu íslenskrar ferðaþjónustu til skemmri tíma sé hann mjög bjartsýnn fyrir framtíð Arctic Adventures og ferðaþjónustunnar. „Ég hef óbilandi trú á Íslandi. Okkur hefur tekist að byggja upp atvinnugrein á heimsmælikvarða sem er ein af meginstoðum þjóðarhagsældar landsins, leggur til um 8,7 % til landsframleiðslu og stendur undir 32 þúsund störfum þar sem laun eru í takti við meðallaun í landinu. Samhliða eru gæði og fagmennska í ferðaþjónustu alltaf að aukast. Þetta er ekki sjálfsagt mál og því ættu stjórnvöld setja ferðaþjónustu í öndvegi í atvinnustefnu sinni.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article